Monday, November 11, 2013

Jæja ég lofaði að koma með fréttirnar af breytingunni en þær eru hvort sem er komnar inn á facebook svo að þær eru ekkert leyndó lengur hehehe. Já ég er orðin stutthærð nánast og er það alveg svakaleg breiting fyrir mig en ég er búin að vera með sítt hár nánast alltaf neme kannski fyrir svona 15 árum síðan þegar ég lét klippa mig stutt en ég var ekki lengi að safna aftur eftir það en núna er ég mjög ánægð ;)

En nóg af mér í bili alla vega. Stelpan byrjaði í lyfjameðferð á miðvikudaginn sl. og gekk hún bara nokkuð vel og var Helena rosalega dugleg allan tíman, líka á meðan verið var að stinga hana. Hún fann varla fyrir því ;) Við vorum uppi á spítala allan daginn, hún að læra og svo að föndra og ég að ræða við félagsráðgjafa í sambandi við akstursstyrk og öll mín réttindi út af framfærslu með langveikt barn. Þetta tók fyrir mitt leiti allt of langan tíma en vonandi tekur þetta ekki svona langan tíma í hvert skipti sem við þurfum að fara. En stelpurnar á leikstofunni meiga nú eiga það að þær styttu tímann alveg helling enda eru þær líka algjört æði. Þær mundu strax eftir okkur mæðgum og létu okkur líða eins og heima hjá okkur alveg strax sem mér finnst alveg frábært þar sem þetta á jú eftir að vera okkar annað heimili í allan vetur. En þegar nálin var sett upp hjá Helenu var tekið blóðsýni og við fengum niðurstöðuna þegar við vorum að fara heim. Niðurstöðurnar voru ekkert voðalega góðar en Helena þjáist af alvarlegum járnskorti og blóðleysi. Hún er strax byrjuð að taka inn járntöflur og svo fáum við að vita hvað hann vill gera meira þegar við hittum læknin 4 des. Þetta er víst eitthvað ættgeingt þar sem bæði ég og mamma erum svona og sama hvað við tökum mikið járn og borðum mikið af járnríku fæði þá virðist líkaminn ekki vilja vinna með það :/ Þetta er of flókið fyrir mig til að skilja svo að ég ætla ekki einu sinni að reyna að gera það. En Helena er flott og hress stelpa sem er bara að fá hita toppa annað slagið en hvað er það á milli vina ;)

Ég fór á árshátíð um helgina með manninum og elsta syninum hjá Msí og skemmtum við okkur alveg rosalega vel. Við vorum ekki komin heim fyrr en rúlega 5 um morgunin það var það gaman hjá okkur. Það má segja það að okkur hafi verið sópað út með ruslinu því að við vorum síðust út hahaha. Sko ekki bara ég og maðurinn minn heldur við tvö og 3 önnur pör líka ;) Já við kunnum þetta alveg ennþá hahaha.