Gleðilegt ár allir og takk fyrir það gamla og allt það.
Nú fer að styttast í það að ég farið á Reykjalund. Já það var hringt í mig rétt fyrir jólin og ég var kölluð inn og ég byrja á mánudaginn 6 janúar kl 9 svo að Baldur verður að fara með Helenu upp á spítala á miðvikudaginn í lyfjagjöfina sem vonandi verður ekki sú síðasta. Ásgeir talaði nefnilega um að ef að hún héldi áfram að verða svona lasin eftir hverja lyfjagjöf þá yrðum við að stoppa en hann vildi prófa eina enn og hægja á henni eða sem sagt gefa henni lyfið hægar láta það renna í lengri tíma sem mér finst bara í góðu lagi. Hún er að fá svo agalega höfuðverki eftir hverja gjöf greyið að það má ekki heyrast eitt lítið týst þá grætur hún sáran, en þetta gengur vonandi betur næst.
En alla vega með mig þá er ég að byrja aftur á Reykjalundi en ég verð bara í 2 vikur alla vega til að byrja með en svo veit ég ekki með framhaldið en það á bara eftir að koma í ljós. Ég ætla alla vega að nýta þessar tvær vikur vel og njóta þeirra.
Jólin eru búin að vera alveg ágæt fyrir utan þetta leiðinda veður en við vorum þá bara inni og slökuðum á fyrir framan imbann með krökkunum. Áramótin voru líka bara róleg veðrið var fínt á meðan við skutum upp og svo fór að blása aftur upp úr kl. 1 og það blæs enn :/ Maður verður pínu þreyttur á þessu roki en það hlýtur að lægja einhvertíman.
Helena fór með ömmu sinni og afa til bróður míns um áramótin og er bara enn með þeim og vill bara ekki koma heim :( Ég hugsa að ég sæki hana nú samt í dag ég er nú farin að sakna hennar dáldið mikið og ég er ekkert búin að sjá hana á þessu ári.
En alla vega þá ætla ég að enda þessa færslu mína með því að óska honum elskulega bróður mínum og mágkonu innilega til hamingju með trúlofunina þið eruð alveg yndislegust :)