Friday, November 30, 2012

Þetta er búin að vera frekar mikið erfið vika. Dóttirin átti að vera með tónleika á mánudagin en þegar hún fer upp á svið og ætlar að byrja að syngja kemur bara ekkert hljóð út úr henni greyinu. Hún varð alveg miður sín og hálfpartin hljóp í fangið á mér og grét. Hún var orðin lasin með hálsbólgu og hita. Við fórum bara beint heim út af þessu og á þriðjudeginum er eiginmaðurinn líka orðinn lasinn með hálsbólgu og hita. Ég reyni mitt besta að hjúkra þeim og láta þeim líða vel nema hvað en á miðvikudaginn fer ég að verða slöpp og prófa að mæla mig og jú ég er komin með hita líka og beinverki. Svo í gærmorgun finn ég að ég er komin með hálsbólgu líka og höfuðverk og bara sár lasin og svo í morgun var hitinn búinn að hækka enn meira. Svo í morgun fann ég að miðju barnið er orðinn lasinn líka og sá elsti að byrja að fá í hálsinn líka. Hvað er í gangi með þessa fjölskyldu eiginlega segi ég nú bara. Ég hringdi í skólann og lét vita að strákurinn kemur ekki og þá var mér sagt að það væru mjög margir veikir þessa dagana svo að þetta eru ekki bara við. En það er alltaf einhver ljós punktur í lífinu og hann er að við verðum þá alla vega búin að taka þetta út fyrir jólin ;)

Að flestu öðru líður mér bara nokkuð vel. Ég mun byrja á að taka inn LDN-ið aftur eftir helgi þ.e. ef að ég verð orðin góð af flensunni sem ég ætla mér að gera og þá vonandi fer ég að verða aðeins hressari á daginn. Maður kemst varla hjá því að fara ekki að hugsa svona mikið um jólin þar sem að það koma liggur við einhver jóla póstur inn um lúguna alla daga en ég ætla að taka jólunum fagnandi í ár. Það þarf að fá smá gleði og gefa jólin okkur hana. Svo eru þetta löng jól þar sem að aðfangadagur er á mánudegi svo að þetta er langvt frí fyrir flesta vinnandi menn og konur ;) Ég ætla alla vega að njóta jólanna í faðmi fölskydunnar :)

Ég er ekki búin að skrifa mikið en ég verð að hætta þar sem að beinverkirnir eru orðnir aðeins of miklir í bakinu.
En ég ætla samt að brosa í allan dag og vona að sem flestir geri það líka :)

Thursday, November 22, 2012

Ætli það sé ekki gominn tími á nýtt blogg frá mér!!!

Ég er búin að vera voða löt að skrifa þar sem að maga flensan er búin að að vera að ráðast hér inn til okkar eins og versti afbrota maður. Fyrst var það dóttirin sem var svo sárlasin og var með mikinn upp og niðurgang og svo tók elsti strákurinn minn við en hann er bara aðeins ver farin greyið og er lengur að jafna sig. Ég varð að hringja á lækni í morgun sem sagði mér að kaupa handa honum eitthvert magalyf til að stoppa niðurganginn og er hann byrjaður að taka það inn. Vonandi fer það að virka fljótt á hann. Maðurinn minn er að byrja með einhvern magaverk en vonandi verður það ekkert meira og svo erum við þ.e. ég og miðju barnið enn sem komið er alla vega ekki farin að finna neitt ennþá nema jú ég er að kafna úr kvefi sem er bara eðlilegt miða við árstíma.

Höfuðverkja köstin eru komin aftur og eru frekar slæm núna. Ekkert virkar á mig til að stöðva þetta þannig að ég ætla bara að reyna að leggja mig eftir þessa færslu. Ég hugsa að ég fari að byrja aftur að taka inn LDN fljótlega. Ég finn mikinn mun á mér frá því að ég hætti að taka það og þá er ég að tala um að ég er mikið orku minni heldur en ég var á meðan ég var á LDN-inu þannig að það er augljóslega að gera eitthvað gott fyrir mig.

Ég er líka komin með vesen með nýrun í mér og verð ég því að byrja enn einu sinni að taka inn sýklalyfin. Þetta pillu vesen er orðið full mikið og á ég von á því að lifrin líti ekkert allt of vel út í mér. Lyfjanotkun í þessu magni sem ég hef þurft að taka í öll þessi ár geta ekki verið að gera hvorki nýrum né lifrinni gott. En ég er að reyna mitt besta með að minka þetta sjálf en ég bara er svo verkjuð alla daga. Ég verð að fara að reyna að koma mér í sjúkraþjálfun aftur og helst bara að reyna að komast inn á Reykjalund aftur. Mér leið mjög vel eftir að ég byrjaði þar og langar mig að byrja þar aftur. Ég talaði við læpkninn minn í gærkvöldi varðandi segulómunina og bað hann mig um að hringja í hann í dag á milli 11 og 11:30 til að ræða það og ætla ég að spyrja hann hvort að hann sé ekki til í að leggja inn beiðni til að komast inn á Reykjalund aftur fyrir mig. Ég krossa alla fingur og tær í von um að hann geri það fyrir mig.
En jæja ég verð að láta þetta duga í dag þar sem að ég er að fara gera allt klárt fyrir morgundagin en við erum að fá vinafólk í mat og vil ég gera húsið fínt og sætt áður en þau koma ;)

Hafið það sem allra best í allann dag og verið góð við hvert annað og munið eftir brosinu :)

Tuesday, November 6, 2012

Ég er búin að fá niðurstöðuna úr segulómuninni og kom hún bara nokkuð vel út. Ég var sem sagt með óþarfa áhyggjur eins og alltaf. En það kom reyndar í ljós að ég er komin með brjósklos í 6 og 7 hryggjalið en ég átti nú alveg von á því enda með handónýtann hrygg og búin að vera með í mörg ár.
En hvað um það, ég vil bara horfa á það góða í kringum mig. Ég er orðin svo lang þreytt á öllu þessu neikvæða og svona í kringum mig og mína svo að nú verður það bara jákvæðni.is ;)

Reyndar er erfitt að vera jákvæður á meðan veðrið er svona eins og það er. Það er enn og aftur komið brjálað rok og núna m eð rigningu/ slyddu. Ég vil bara meina þð að lognið sé að drífa sig eitthvað annað ;)
Þegar krakkarnir eru búnir í skólanum og sundæfingu eru strákarnir að fara í klippingu loksins eins og þeir segja. Já þegar þeir eru farnir að tala um að þeir séu komnir með lubba þá bara verð ég að fara með þá ;) Stelpan vill reyndar líka fara en ég fer með hana fyrir jólin bara og á fer ég líka. Maður verður að vera voða fínn á jólunum er það ekki ;)
Já það er orðið ansi stutt í jólin.
Í gær varð ég heldur betur hrædd, ég lá í sófanum og var að horfa á þátt með manninum mínum þegar ég finn að hjartað byrjar að slá svo fast að ég hélt að það ælaði út úr líkamanum. Þetta var ekkert voðalega gott og svo dofnaði ég í h/ handleggnum í smá tíma á meðan þetta stóð yfir. En núna er ég í lagi svo að þetta hefur bara verið eitthvað smávægilegt.

En núna verð ég að skjótast eftir krökkunum þar sem veðrið er orðið svo leiðinlegt svo að ég kveð ykkur kæru lesendur með bros á vör eins og alltaf :D