Ætli það sé ekki gominn tími á nýtt blogg frá mér!!!
Ég er búin að vera voða löt að skrifa þar sem að maga flensan er búin að að vera að ráðast hér inn til okkar eins og versti afbrota maður. Fyrst var það dóttirin sem var svo sárlasin og var með mikinn upp og niðurgang og svo tók elsti strákurinn minn við en hann er bara aðeins ver farin greyið og er lengur að jafna sig. Ég varð að hringja á lækni í morgun sem sagði mér að kaupa handa honum eitthvert magalyf til að stoppa niðurganginn og er hann byrjaður að taka það inn. Vonandi fer það að virka fljótt á hann. Maðurinn minn er að byrja með einhvern magaverk en vonandi verður það ekkert meira og svo erum við þ.e. ég og miðju barnið enn sem komið er alla vega ekki farin að finna neitt ennþá nema jú ég er að kafna úr kvefi sem er bara eðlilegt miða við árstíma.
Höfuðverkja köstin eru komin aftur og eru frekar slæm núna. Ekkert virkar á mig til að stöðva þetta þannig að ég ætla bara að reyna að leggja mig eftir þessa færslu. Ég hugsa að ég fari að byrja aftur að taka inn LDN fljótlega. Ég finn mikinn mun á mér frá því að ég hætti að taka það og þá er ég að tala um að ég er mikið orku minni heldur en ég var á meðan ég var á LDN-inu þannig að það er augljóslega að gera eitthvað gott fyrir mig.
Ég er líka komin með vesen með nýrun í mér og verð ég því að byrja enn einu sinni að taka inn sýklalyfin. Þetta pillu vesen er orðið full mikið og á ég von á því að lifrin líti ekkert allt of vel út í mér. Lyfjanotkun í þessu magni sem ég hef þurft að taka í öll þessi ár geta ekki verið að gera hvorki nýrum né lifrinni gott. En ég er að reyna mitt besta með að minka þetta sjálf en ég bara er svo verkjuð alla daga. Ég verð að fara að reyna að koma mér í sjúkraþjálfun aftur og helst bara að reyna að komast inn á Reykjalund aftur. Mér leið mjög vel eftir að ég byrjaði þar og langar mig að byrja þar aftur. Ég talaði við læpkninn minn í gærkvöldi varðandi segulómunina og bað hann mig um að hringja í hann í dag á milli 11 og 11:30 til að ræða það og ætla ég að spyrja hann hvort að hann sé ekki til í að leggja inn beiðni til að komast inn á Reykjalund aftur fyrir mig. Ég krossa alla fingur og tær í von um að hann geri það fyrir mig.
En jæja ég verð að láta þetta duga í dag þar sem að ég er að fara gera allt klárt fyrir morgundagin en við erum að fá vinafólk í mat og vil ég gera húsið fínt og sætt áður en þau koma ;)
Hafið það sem allra best í allann dag og verið góð við hvert annað og munið eftir brosinu :)
No comments:
Post a Comment