Þetta er búin að vera frekar mikið erfið vika. Dóttirin átti að vera með tónleika á mánudagin en þegar hún fer upp á svið og ætlar að byrja að syngja kemur bara ekkert hljóð út úr henni greyinu. Hún varð alveg miður sín og hálfpartin hljóp í fangið á mér og grét. Hún var orðin lasin með hálsbólgu og hita. Við fórum bara beint heim út af þessu og á þriðjudeginum er eiginmaðurinn líka orðinn lasinn með hálsbólgu og hita. Ég reyni mitt besta að hjúkra þeim og láta þeim líða vel nema hvað en á miðvikudaginn fer ég að verða slöpp og prófa að mæla mig og jú ég er komin með hita líka og beinverki. Svo í gærmorgun finn ég að ég er komin með hálsbólgu líka og höfuðverk og bara sár lasin og svo í morgun var hitinn búinn að hækka enn meira. Svo í morgun fann ég að miðju barnið er orðinn lasinn líka og sá elsti að byrja að fá í hálsinn líka. Hvað er í gangi með þessa fjölskyldu eiginlega segi ég nú bara. Ég hringdi í skólann og lét vita að strákurinn kemur ekki og þá var mér sagt að það væru mjög margir veikir þessa dagana svo að þetta eru ekki bara við. En það er alltaf einhver ljós punktur í lífinu og hann er að við verðum þá alla vega búin að taka þetta út fyrir jólin ;)
Að flestu öðru líður mér bara nokkuð vel. Ég mun byrja á að taka inn LDN-ið aftur eftir helgi þ.e. ef að ég verð orðin góð af flensunni sem ég ætla mér að gera og þá vonandi fer ég að verða aðeins hressari á daginn. Maður kemst varla hjá því að fara ekki að hugsa svona mikið um jólin þar sem að það koma liggur við einhver jóla póstur inn um lúguna alla daga en ég ætla að taka jólunum fagnandi í ár. Það þarf að fá smá gleði og gefa jólin okkur hana. Svo eru þetta löng jól þar sem að aðfangadagur er á mánudegi svo að þetta er langvt frí fyrir flesta vinnandi menn og konur ;) Ég ætla alla vega að njóta jólanna í faðmi fölskydunnar :)
Ég er ekki búin að skrifa mikið en ég verð að hætta þar sem að beinverkirnir eru orðnir aðeins of miklir í bakinu.
En ég ætla samt að brosa í allan dag og vona að sem flestir geri það líka :)
No comments:
Post a Comment