Tuesday, October 29, 2013

Heilsan góð og spenningur mikill hjá sumum ;)

Heilsan er bara nokkuð góð hjá mér fyrir utan smá svima sem er búin að vera að hrjá mig sl. 3 daga en ég held að hann stafi af einhverri pest því að ég er búin að vera með smá hita líka, ekki mikinn samt en smá. En það eru bara 8 daga í það að Helena byrji í lyfjameðferð á spítalanum og þarf hún að fara á 3 vikna fresti. Hún fær kennslu í hvert skipti svo að hún missir ekkert úr skólanum í þetta skipti sem er frábært alveg og er hún svo spennt fyrir því að fá að fara í skólann á spíalnum að hún getur vala beðið ;)

Eftir 2 daga verð ég orðin grasekkja í 4 daga og verð ég að segja það að ég er bara farin a ð hlakka pínu til. Við krakkarnir ætlum að hafa það svo skemmtilegt á meðan og koma svo pabba þeirra skemmtilega á óvart þegar han kemur heim að við getum ekki  beðið :) Við erum að spá í að fara í bíó og svona og fá okkur eitthvað gott að borða og kannski spila og gera eitthvað voða skemmtilegt. Reyndar verður Alexander að vinna alla helgina en hann gerir þá bara eitthvað með okkur þegar hann er búinn að vinna. Ég geri allt of sjaldan eitthvað skemmtilegt með krökkunum finnst mér nema kannski að fara með strákunum að hjóla en Helenu finnst það td ekkert gaman. Ég vona að veðrið verði gott því að það gæti verið gaman að fara eitthvað út með þeim að labba eða eitthvað svoleiðis :)

Ég er svo stolt að honum Andra Snæ en hann ásmt tveimur bekkjar sistrum sínum opnuðu síðu á facebook gegn einelti. Tilgangurinn með þessari síðu er að vekja fólk til umhugsunar um að einelti á ekki að eiga sér stað og er ljótt. Eineltilti getur skemt líf þolenda því að sumir alls ekki allir en sumir þola það svo illa að þeir ákveða það að enda líf sitt því að þeim líður svo illa en aðrir eru aðeins sterkari og geta haldið áfram að lifa en örin gróa hægt og tala ég af reynslu. Ég varð fyrir frekar ljótu einelti sem barn í grunnskóla. Ég var uppnefnd og mér var strítt upp á hver einasta dag. Ég tel mig bara vera það sterka að ég stóð upp sem sigurvegari. Ég lifði af grunnskólann en ég er enn sár, ég er óörugg, feiminn og klaufaleg. Þegar ég er í kringum fólk tala ég mikið og hlæ og brosi en innst inni er ég brothætt og langar oft að fara að gráta en ég geri það ekki af því að ég er sterk og ég vil vera sterk. Ég er líka með minn vin minn með mér í för sem heitir Ms og erum við alltaf saman en sýnum það ekki alltaf.


No comments:

Post a Comment