Tuesday, October 15, 2013

Jákvæðni kemur manni langann veg!

Það er mikið búið að ganga á þessa vikuna svo ekki sé meira sagt!!! En stæðstu fréttirnar eru þær að Helena þarf að byrja í lyfjameðferð aftur og mun hún líklegast byrja núna í næstu viku. Hún þyngist svo til ekki neitt sem þýðir að hún er greinilega ekki heldur að nærast nógu vel. Sama hvað ég reyni að fá hana til að borða fjölbreitt fæði þá fer voða lítið ofan í hana. Hún segist vera svöng og allt það en svo þegar maturinn kemur á borðið þá borðar hún voða lítið. Jú það koma dagar þar sem hún borðar vel en þeir eru fleiri þar sem að hún vill helst ekki neitt.  Hún á á vera í meðferðinni þangað til í apríl eða mai sem er allur veturinn en við bara verðum að taka því. Ekki þýðir að gráta það eitthvað því að ekki græðir maður mikið á því ;) Hún er bara frekar spent að byrja því að hún fær að fara í skóla á spítalanum líklegast þ.e. á meðan hún er með nálina í sér og á meðan lyfið er að renna í gegn sem tekur svona 3-4 klst í senn þá sleppur hún ekkert við það að þurfa að læra ;) Enda vill hún það heldur ekkert hún er svo dugleg í skólanum og henni þykir svo gaman að læra. Hún var að gera skriftarverkefni í heimanámi í gær og ég verð nú bara að segja að vá hvað barnið skrifar vel. Hún skrifar betur en  allir á heimilinu til samans.

En heilsan hjá mér er búin að vera nokkuð stabíl svo að ekki hef ég undan neinu að kvarta. Ég fór út að labba í gær með henni Vigdísi vinkonu og var það bara mjög hressandi enda veðrið æðislaga gott og fallegt. Við löbbuðum út í skóla til að borga bíóferðina sem að Andri er að fara í og svo í áttina að Brautarholtskirkju. Á morgun ætlum við að endurtaka þetta og svo aftur og aftur og vonandi verð ég eins dugleg og hún er en hún er ný búin að eignast lítinn strák sem hún fer alltaf út að gana með og svo er hún með 3 hunda sem þurfa að hreifa sig líka. Ég verð að fara að vera duglegri að hreifa mig.

Það styttist í það að eiginmaðurinn fari út og er ég bara farin að hlakka pínu til ;) Ég hlakka samt meira til að fá hann heim aftur því að þá kemur smá leyndó ;) Segi ekki meira í bili þó svo að hann lesi þetta aldrei því að hann má ekki frétta neitt ;) Þetta kemur allt í ljós eftir að hann kemur heim ;)


No comments:

Post a Comment