Það er farið að líða þó nokkuð langur tími á milli skrifta núna en það má þá bara segja það að ég er bara búin að vera alveg orkulaus síðan ég kom úr fríinu mínu til Akureyrar. Ég reyndar fór með fjölskyldunni á keppnina í Motomos sl. laugardag þar sem að minn elsti var að keppa og vann takk fyrir og sérstaklega eftir þann dag er ég ekki búin að hafa neina orku til að gera mikið.
Ég er nú samt þrátt fyrir orkuleysið búin að vera dugleg að taka inn LDN-ið og gengur það bara mjög vel. Ég finn af og til mikla verki þ.e. taugaverki og gigtaverki en ég er farin að tengja það við kulda. Um leið og það byrjaði að kólna á kvöldin og næturnar byrjuðu verkirnir að aukast og eins og t.d. í dag eru bara 14°c og vekirnir eru á mælikvarðanum frá 1-10 svona 6 hjá mér. Ég varð að taka inn Gabapentin núna rétt áðan til að reyna að slá á verkina og vonandi virkar það.
LDN er ekki lækning heldur gefur manni meiri lífsgæði og er ég líka búin að sjá það og finna. Ég verð ekki eins þreytt og ég var alltaf. Jú ég verð þreytt en ekki eins. Ég reyni bara að leggja mig þó svo að það séu ekki nema kannski svona 10 mín í senn en það er alveg nóg til að halda áfram að gera það sem þarf að gera í hvert sinn. Ég á það nú samt til að sofna og þá fast inn á milli eins og í morgun en ég vaknaði við símann. Það var sonur minn að hringja í mig og biðja mig um að sækja sig í skólann en hann er í skóla í bænumm núna og strætó gengur voða asnalega hingað. En alla vega þá þurfti hann að hringja 3 sinnum svo að ég vaknaði, samt svaf ég ekki nema kannski í mesta lagi í 20 mín. Eitthvað segir mér að ég geti verið að byrja í kasti eina ferðina enn en ég finn fyrir meiri dofa v/ megin og meiri sleni. Ég vona nú að ég sleppi við kast vegna þess að ég er að fara á reunion 8 september nk. Ég verð bara að reyna að passa mig og fara vel með mig þangað til!!!
No comments:
Post a Comment