Wednesday, September 5, 2012

Jæja þá kem ég loksins með nýtt blogg. Ég er farin að vera ansi löt að blogga enda finnst mér ég aldrei hafa neitt merkilegt að skrifa um. Ég er búin að vera mjög upptekin undanfarna daga að undirbúa Reunion sem verður um helgina og finnst mer það bara mjög gaman en það er samt pínu þreytandi. En það sem er gaman verður maður að reyna að gera. Ef maður hefði ekki gaman af því sem maður er að gera þá væri lífið bara hund leiðinlegt. En alla vega þá er ég að fara á reunion um helgina og hlakka ég alveg rosalega mikið til. Það eru 20 ár síðan ég sá flest alla krakkana eða gamlingjana núna kannski nema auðvitað ég sem er endalaust ung ;)

En ég er enn dugleg að taka unn LDN-ið en ég verð að viðurkena það að ég er hætt að finna mikin mun. Ég er ennþá voðalega þreytt alltaf og verkjuð. Ég á jú góðu dagana en ég á fleiri slæmu dagana þ.e. verkjuð og slöpp. En maður verður samt að halda áfram að lifa og gera það sem eer gaman og einbeita sér frekar á það jákvæða heldur en það neikvæða. Ég reyni það alla vega alla daga. Ég get alveg verið neikvæð enda er ég mannleg en ég reyni samt að vera oftar jákvæð og lýta á björtu hliðarnar.

No comments:

Post a Comment