Jæja ætli það sé ekki komin tími á nýtt blogg frá mér eftir þetta dásamlega frí sem ég fór í norður til Akureyrar. Við vorum uppi á Hömrum allan tíman nema eina nótt sem var sú síðasta þar sem að elsta barnið varð að ná góðum svefni fyrir keppnina. En alla vega þá var þetta alveg dásamlegt. Það var æðislegt veður allan tíman og hitinn alveg mjög góður. Það má næstum segja það að við höfum verið í útlöndum á sólarströnd, veðrið var það gott.
En ég var dugleg að taka inn LDN-ið fyrir utan 3 daga sem að ég gleymdi því. En það varð enginn skaði af svo að ég held að það sé allt í lagi. Við komum heim á 11ta degi bara til að ná að hvíla okkur á þeim 12ta sem að við gerðum. Reyndar er heilmikill þvottur eftir sem að ég er enn að þvo en ég hef svo sem nógan tíma.
Það er bikarmót um helgina í Mótorkross í Motomos um helgina og erum við hjónin að sjá um hana ásamt nokkrum öðrum svo að það er líka nóg að gera í því en það er aðalega eiginmaðurinn sem sér um allt það erfiðasta þar. Ég þarf reyndar að fara í dag eða í kvöld að þrífa skálann en það á ekki að taka langann tíma. Dóttirin er að fara í nætugistingu hjá vinkonu sinni í dag svo að ég fer bara þegar hún er farin.
Ég átti ekkert voðalega góðan dag í gær en ég fékk ælupestina og líðan eftir því. Ég var með beinverki, hita, óglegði og magakvalir. Sem betur fer tók þetta bara sólahring því að í dag líður mér mun betur. Ég er bara fegin að ég hafi ekki veikts á meðan við vorum fyrir norðan.
En nú ætla ég að fara að halda áfram að ganga frá eftir ferðalagið svo að ég kveð í bili :)
No comments:
Post a Comment