Tuesday, July 24, 2012

Næstu 8 dagar verða heldur betur skrítnir. Yngri börnin eru farin norður nánar tiltekið út í Hrísey til ömmu sinnar og afa og svo hittum við kakkana eins og ég sagði eftir 8 daga á Akureyri. Þetta verður gott frí frá krökkunum en sem betur fer er það ekki lengra. Ég er farin að sakna sérstaklega litlu dúllunnar minnar alveg óhemju mikið enda er hún búin að vera fyrir norðan í 11 daga nú þegar en strákurinn fór bara núna áðan.

Enn núna er ég búin með skammtin af bólgueyðandi lyfjunum sem ég var látin á út af ofnæmisviðbrögðunum svo að núna er ég bara að taka LDN og Íbúfen. Ég byrja aftur á Gabapentin um mánaðarmótin. Ég er reyndar með mikla taugaverki núna en þeir hafa oft verið verri svo að ég ætla að þrauka þetta.

Það er stóra spurningin um það hvort að ég eigi að taka mér frí frá LDN á meðan ég verð fyrir norðan eða hvort að ég eigi að taka það með. Ég býst passlega með því að ég taki það með en ég er ekki búin að ákveða neitt ennþá samt. En mér er farið að líða svo mikið betur eftir ég byrjaði að taka það inn að það er ekki hægt að líkja líðan minni núna saman við líðan minni fyrir LDN. Og svo eru gleðitýðindin þau að núna er hægt að fá þetta lyf hér á Íslandi :) Það er pressunni frá okkur MS sjúklingum og öðrum að þakka að stjórnvöld samþykktu það að hefja sölu hér á landi er ég viss um en við erum búin að vera að pressa og pressa á þau í langan tíma. Nú er bara að halda áfram að pressa á þau í að samþyggja ms lyfið fyrir okkur ms sjúklingana, svo koma svo ms sjúklingar, pressum á þau og veruð dugleg að tala nógu mikið um þetta svo að við fáum okkar framgengt. Það er jú tölvert ódýrara að hafa okkur á lyfjum en án þeirra og inni á spítölum endalaust út af lömun eða einhverju þ.h.r.

En já við erum að fara í gott frí eftir 8 daga og hlakka ég mikið til þess að fara. Ég á eftir að gera nokkuð mikið áður en við förum svo að ég læt þetta duga alla vega í dag. Ég veit ekki hvort að ég bloggi eitthvað meira áður en ég fer en ef ekki þá segi ég bara bless í bili.

2 comments:

  1. Ég mæli með því að þú sleppir EKKI ldn-inu ef þú þarft þess ekki. Við erum undir meira álagi annarstaðar en heima hjá okkur og því en betra að nota ldn til að styrkja sig ;)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Takk Helga, ég reyndar gleymdi því í 3 daga en það varð enginn skaði sem betur fer :)

      Delete