Monday, January 7, 2013

GLEÐILEGT ÁR KÆRU LESENDUR OG ÉG ÞAKKA SAMVERUNA Á ÞVÍ GAMLA :)

Ég er ekki búin að vera dugleg að blogga um jólin svo að ég skal reyna mitt besta að bæta úr því.
Jólin eru búin að vera góð hjá okkur þrátt fyrr þráðláta flensu öll jólin. Hún virðist vera að fara fyrst núna sem betur fer. Ég sem var búin að ákveða það að vera alveg laus um jólin en þetta bara sannar það að maður getur ekki alltaf fengið það sem maður vill. En Jólin voru samt sem áður alveg yndisleg í alla aðra staði. Við náðum að slaka vel á og sofa mikið sem að ég þurfti virkilega á að halda. Dóttirin virðist eitthvað vera að fara aftur í veikinda rútínuna en hún er búin að vera með hitatoppa öll jóln, þá er ég ekki að tala um háann hita heldur er hún kannski með 38 á morgnana og fram yfir hádegi og svo hitalaus til svona 23 kvöldin og þá ríkur hún upp aftur. Og svo er miðju barnið svo slæmur af mígreni að hann er að fara til læknis á föstudaginn og svo aftur 6 febrúar. Já þetta er endalaust hér á þessu heimili. Elsti sonurinn er búinn að vera duglegur að vinna allann desember mánuð og svo á morgun byrjar hann aftur í skólanum eftir tæplega mánaðar jólafrí. Svo er það bara bílprófið aftir 7 vikur hjá honum. Ég get ekki neitað því að ég sé pínu stressuð en hann er mjög góður og öruggur bílstjóri svo að ég á ekki að vera að stressa mig.

Ég er ekki enn byrjuð aftur að taka inn LDN-ið en ég verð að fara að gera það. Ég veit ekki af hverju ég er að draga þetta svona. En það er annað sem ég er byjuð að gera og það er að ég er farin að huga að mataræðinu hjá mér. Ég er hætt í öllu gosi og nammi og ég ætla að reyna að taka allt hveiti út hjá mér líka. Ég borða mjög sjaldan brauð þanng að ég fæ hvetið ekki þaðan en það er bara svo mikið hveti í mörgum matvælum sem maður kaupur út í búð svo að ég verð að fara að lesa betur á umbúðirnar.
Ég er byrjuð að taka inn magesíum og vona ég að það hjálp mér eitthvað í sambandi við orkuleysið í mér.

Ég er búin að vera með mikinn svima í heila viku eða rúma viku og skil ég engan vegin af hverju hann er en ég er bún að heyra nokkra aðra vera að tala um þetta líka svo að ég held bara að þetta sé annað hvort eitthvað í loftinu eða ég bara enn eitthvað lasin. En ég verð  að láta þetta duga þar sem að sviminn er kominn aftur svo að ég bið bara að heilsa ykkur með bros á vör þrátt fyrr svimann.

No comments:

Post a Comment