Ég er búin að vera í pínu sjokki eftir að ég kom frá lækninum svo að ég hef ekkert vljað vera að blogga neitt. Ég fæ ekki Tysabri né hitt lyfið svo að ég verð látin bíða enn lengur en ég á að byrja í strangri sjúkraþjálfun til að kenna líkamanum að hlíða heilanum í hreifingum og á ég að byrja á Reykjalundi og svo fara í sjúkraþjáfun einhverstaðar í bænum í alla vega 4 skipti og svo í Mosó. Ég er ekki orðin alveg 100% eftir kastið um daginn og á ekki von á að verða það aftur í einhvern tíma alla vega. En aldrei að segja aldrei. Þetta er bara gangur lífsins og verður maður bara að taka því. Annars hef ég alveg rosalega gott af því að fara á Reykjalund og er ég bara nokkuð spent að fara.
Ég á ekki að byrja á LDN-inu aftur svo að ég hef ekkert verið að gera það en það er að koma annað ms lyf á markað eftir ár sem ég mun pottþétt fá og ætla ég mér bara að bíða eftrir því.
Ég átti afmæli um daginn og bauð ég öllum okkar helstu vinum okkar í mat. Ég var með uppáhalds réttinn minn og voru allir bara mjög sáttir með hann. Við skemmtum okkur mjög vel fram eftir kvöldi og þegar gestirnir voru farnir fórum við bara í rúmið enda frekar þreytt eftir langan dag.
Yngri guttinn minn fór til taugalæknis um daginn og greindist hann með mjög mikið mígreni og er hann kominn á lyf við því sem vonandi fer að virka sem fyrst. Hann er með mígreni daglega og er það að trufla hann í skólanum. Svo er dóttirin að fara að hitta lækninn sinn á mánudagnn en hún kallar hann Ásgeir afa því að hann er bún að vera með hana í meðferð síðan hún fæddist og eru þau mestu mátrar. Hún fæddist með ónæmsgalla og er því mjög oft veik en var bún að ná sér en er byrjuð að vera slæm aftur. Hún er endalaust að fá svokallaða hitatoppa þ.e. kannski hitalaus á daginn en ríkur upp í hita á kvöldin og yfir nóttina og um morguninn kannski og svo aftur hitalaus yfir daginn. Svo er hún byrjuð að grípa hverja pest á fætur annari sem er kannski ekki svo skrítið þegar hálfur skólinn er kannski að veikjast núna en hún virðist vera að veikjast oftar en aðrir. En þetta kemur allt í ljós vonandi í næstu viku eða þar næstu.
Svo eru bara tæpar 3 vikur í að elsta barnið fái bílpróf svo að ég er bara komin með einkabílstjóra þá ;)
Nei hann er búinn að segja það að hann vilji það sko alls ekki en hann fær þá bara ekki bílinn minn lánaðann ;) En það verður ansi gott þegar hann fær prófið því að þá getur hann keyrt sig sjáfur í og úr vinnu um helgar.
Jæja lenga hef ég þetta ekki og ég reyni mitt besta með að vera duglegr að skrifa.
Verið góð við hvert annað og verið jákvæð með bros á vör því að þá fáið þið bros á móti og það er svo gott.
No comments:
Post a Comment