Thursday, July 12, 2012

Þá er ég loksins búin í steragjöfinni sem að ég veit ekki ennþá afhverju ég þurfti að fara í. Ég fékk alveg agalegar aukaverkanir sem ollu því að ég var með mikla ógleði, máttlaysi og orkuleysið algjört. En mér er byrjað að líða aðeins betur og vonandi verð ég fljót að jafna mig á þessu. Ég fékk líka heldur betur stórann skamt eða 3000 ml. á 3 dögum. Ekki það að ég hafi mikið vit á þessu en ég er nokkuð viss um að það sé heldur mikið.

En ég er búin að vera dugleg að taka inn LDN-ið þrátt fyrir steragjöfina og ég ætla mér að halda því áfram. Mér finnst það vera að gera mér hellings gagn og ég verð orkumeiri og minnið er farið að vera aðeins betra. Ég er líka jákvæðari og ég hef meiri löngun í að gera eitthvað af viti. Mér langar meira að fara út úr húsi að gera eitthvað heldur en að hanga svona mikið innan dyra. Já ég held bara að ég geti án þess að hika mælt 150% með LDN fyrir okkur ms sjúklinga alla vega.

Ég er vel marin og blá eftir stera gjöfina enda mjög erfitt að finna góðar æðar á mér og þurfti hún Lína hjúkrunnarfræðingur að stinga mig ansi oft. Í gær gekk þetta svo illa að hún þurfti að hringja á aðra hjúkku til að aðstoða og sú hjúkka kallaði á svæfingarlækni. Þá loksins gekk þetta en þetta var algjöt helvíti að ganga í gegnum þar sem að ég er drullu hrædd við þessar nálar. Kannski má kalla það aumingjaskap en þegar maður er búin að vera eitt gatasykti í svona mörg ár þá verður maður nú pínu kvektur. En þetta er alla vega búið í bili og vonandi þarf ég ekki á þessu að halda í nánustu framtíð. Ég meina á síðastliðnum 2 mánuðum er ég búin að fá algjört ógeð af nálum. Fyrst járngjöf í 6 vikur og svo sterar í 3 daga. Já ég er nú búin að fá minn skamt út árið og helst út næstu 40 árin bara.

En nú ætla ég mér að drífa mig út í blíðuna sem er hér hjá mér í dag og næstu daga svo að ég kveð í bili :)

No comments:

Post a Comment