Wednesday, July 4, 2012

Í dag fæ ég að vita hvenar ég á að leggjast inn á sjúkrahúsið á Akranesi til að fá steragjöf. Í þessum srifuðu orðum er ég að bíða eftir símtali frá lækninum svo að það er smá kvíðahnútur í maganum á mér sem á ekki að vera en ég bara þoli ekki spítala og vil sem minnst þurfa að liggja inni en svona er þetta bara stundum og verður maður þá bara að líta á björtu hliðarnar og hugsa um það að þetta gæti verið verra :) Það má alveg vera rigning og slagviðri á meðan ég er inni og svo um leið og ég má fara heim þá verður mallorka veður út ;)
En það verður aftur keppni hjá mínum elsta um helgina og aftur uppi á Skaga svo að það má segja það að þetta verður bara Skaga sumar hjá okkur í ár ;)

Svo eru krakkarnir mínir þau yngri að fara norður eftir nokkra daga og verðum við því barnlaus þangað til í ágúst. Það verða viðbrigði má segja og tómlegt húsið. Ég verð alein heima og elsta barnið verður að vinna og eins eiginmaðurinn. Þennan tíma ætla ég að reyna að slaka vel á og reyna að ná að hvíla mig vel eftir steragjöfina. Ótrúlegt en satt þá verður maður verður drullu þreyttur eftir spítaladvöl þó svo að maður á að hvílast vel þar. Svona eru hlutinir furðulegir.

Ég er mjög dugleg að taka inn LDN-ið og reyni eins og ég get að sleppa ekki úr degi en það hefur samt alveg komið fyrir 3-4 sinnum að ég hef gleymt því. En mér líður alltaf betur og betur. Ég þarf orðið ekki að taka inn gabapentin á morgnana. Ég tók það alla vega ekki í morgun og er ekki enn farin að fá þessa stöðugu taugaverki sem ég hef alltaf verið endalaust með. Halelúja við því ;) Ég er svo mikið til í það að vera alveg lyfjalaus það sem eftir er en það eru víst bara dramórar enn sem komið er. En á meðan ég þarf ekki að taka inn 6-10 töflur lengur bara í mesta lagi 5 þá er ég sátt.
Járnið átti að láta mig hætta að vera alltaf svona þreytta sem það gerði að hluta kannski en ég er enn alltaf þreytt þ.e. þreyttari en heilbrigð manneskja og finnst mér það voða leiðinlegt. Ég vil getað gert svo margt með hinum en ég get ekki gerat allt sem mig langar að gera. En ég verð bara því miður að sætta mig við það eins og svo margt annað. Þetta getur verið svo mikið verra svo að ég væli ekki!!!

No comments:

Post a Comment