Jæja batinn er komin á gott skrið. Mér er farið að líða mikið betur, ógleðin hætt og verkirnir farnir. Ég er reyndar enn með einhver útbrot eftir sterana en þau fara líka fljótt vonandi. Ég fékk eitthvað sterkt bógueyðandi lyf sem ég á að taka í 10 daga sem virðist vera gera gæfu muninn. Svona ofnæmiskast hefði getað farið ver en sem betur fer fékk ég læknis hjálp í tíma. Ég varð alveg hrikalega slæm. Ég fékk sára verki allstaðar þ.e. það mátti bara ekki snerta mig þá fann ég sárann sviða og verki og svo fékk ég hita og eins og ég var búin að segja útbrot líka. Ég mun hafa samband við lækninn minn um leið og hann kemur til baka út af þessu.
En jú enn gengur LDN gjöfin ljómandi vel og finn ég mun á mér dag frá degi. Ég er mikið hressari og aktífari. Ég er farin að getað gert mikið meira en ég var vön þ.e. í að halda húsinu hreinu og þ.h.r. Ég reyndar fer svona yfirleitt snemma að sofa og sef nokkuð vel svona yfir höfuð. Jú það koma nætur sem ég sef illa en þær eru mikið færri núna. Ég er hætt að vakna svona oft á nóttunni eins og ég gerði. Sef svona yfirleitt alveg 7-8 tíma samfleitt sem ég gerði ekki áður.
Í gær t.d. sofnði ég um kl. 22:30 og vaknaði svo kl. 6 og fór þá bara í bað og svona. Ég vakti svo elsta soninn svo að hann gæti farið í vinnu á réttum tíma. Ég er núna búin að setja í tvær vélar og þurkarann. Já það rignir í dag svo að þurkarinn fær að vinna í dag. Rigningin er vel þegin þar sem að það er búinn að vera stanslaus þurkur í alla vega 2 ef ekki 3 vikur. Það er bara allt að skrælna, grasið og kartöflurnar.
Í dag erum við vonandi að fara að sjá nýjasta ská fjölskyldu meðliminn en þau Ómar og Rebekka voru að eignast sitt fyrsta barn sem er lítill fallegur strákur. Ég hlakka mikið til að sjá hann. Ég elska lítil nýfædd börn. Ég er búin að kaupa sængurgjöfina og hlakka mikið til að gefa hana :) Dóttir mín veit af því að við séum að fara að sjá hann en hún er úti í Hrísey núna með ömmu sinni og afa en ég sagði henni að við myndum bara fara aftur þegar hún kemur heim og það gladdi hana mikið :)
En já til hamingju aftur með litla prinsinn elsku Ómar og Rebekka mín :)
No comments:
Post a Comment