Dagur 12 á LDN
Mér líður bara nokkuð vel, ég er reyndar voðalega þreytt ennþá enda járnlaus og svo var að að fá að vita það bara núna áðan að LDNið gerir mann líka þreyttan fyrst til að byrja með en svo lagast það til muna.
En ég bara verð að fá mikla orku núna í kroppinn þar sem að hún dóttir mín á afmæli í dag og er 7 ára og verðum við með afmælisveislu um helgina. Fyrst verður barnaaffmæli og svo kemur fullorðna fólkið. Svo er svo fyndið að þegar ég hringdi í mömmu bestu vinkonu hennar til að bjóða henni þá var dóttur minni boðið í afmælið hennar strax á eftir :) Svo að þetta verða afmælisgeðveiki um helgina ;)
En þar sem að ég er frekar orkulaus þá veerð ég að passa að ofgera mér ekki og fæ því mikla hjálp frá manninum mínum og sonum. Það verða allir að vera duglegir að hjálpast að þegar svona kjúkklingur er á heimilinu ;)
Ég er svo forvitin á að vita hvernig mat er best að borða fyrir ms sjúklinga svo endilega sendið mér línu um það á comentinu!!! Ég er farin að asnast til að fá mér alltaf kaffibolla á morgnana en ég er ekket allt of viss um að það sé gott fyrir mig. Ég borða nánast ekkert brauð lengur og drekk mikið vatn. Ég reyni að borða vel af ávöxtum og svo fæ ég mér reglulega hafragraut á morgnana en ekki alltaf samt. Ég er lkíka dugleg að borða grænmeti enda finnst mér t.d. kjöt ekki gott án þess að vera með grænmeti með líka. Ég reyni að borða mikinn fisk og þá helst þorsk og svo tek ég á hvejum morgni D-vítamín og lýsi.
Kannski er þetta nógu gott hjá mér en ég er svo viss um að það sé alltaf hægt að gera betur.
En í tilefni dagsins þá vil ég ddeila með ykkur mynd af afmælisbarninu mínu eða litla kraftaverkinu mínu sem ég þakka honum Sverri heitinum svo fyrir :)
No comments:
Post a Comment