Wednesday, May 30, 2012

Jæja þá er enn einn dagurinn á LDN og gengur bara vel að taka það. Ég blandaði í annan skamt í gær svo að nú er ég búin að gera það 3 sinnum. Þetta er frekar vont á bragðið en þetta venst óvenju fljótt. Ég reyni bara að sprauta þessu upp í mig þ.e. ofn í kok og svo drekk ég fullt glas af vatni á eftir og þá er þetta í lagi.

Ég átti að fá járn í æð í annað skipti í dag en nei þá var ekki til járn í apótekinu svo að ég varð að fresta tímanum þangað til á morgun. Það er svo sem allt í lagi þar sem að ég verð hvort eðer að fara með bílinn minn í skoðun þá svo að ég get gert þetta í leiðinni.
Mér er búið að vera mjög íllt í líkamanum í allan dag svo að ég get lítið sem ekkert gert. Ég er mjög bólgin á v/ fæti og hendurnar eru líka mjög bólgnar. Mér líður alveg 50 árum eldri en ég er þegar ég er svona, en hvað get ég gert. Ég er búin að taka inn íbúfen og parataps og líka Gabapentin en ekkert virkar. Ég var samt að velta því fyrir mér hvort að ég sé svona bólin út af Gabapentininu. Ég er engin sérfræðingur en ég var svipuð þegar ég var að taka lyrika en ekki eins slæm reyndar.

En núna er tími fyrir mig til að reyna að leggja mig í smá stund á meðan krakkarnir fóru með ömmu sinni og afa í grillveislu og maðurinn minn er að vinna eitthvað frameftir. Hvíldin er það besta þegar maður er svona slæmur.

No comments:

Post a Comment