Thursday, May 31, 2012

Dagurinn í dag er búin að vera mjög góður og svo ekki svo góður. Ég var fín af verkjunum í allan dag svo að ég var ekkert að taka nein lyf. Svo núna undir kvöldið byrjuðu verkirnir sinnum 100 alveg stanslaust. Nú í augnablikinu er ég allt í lagi en ég er að vona svo innilega að ég fari ekki að versna aftur, þetta er bara svo sárt.  Nú erum við að fara í stutt ferðalag um helgina sem ég er drullu kvíðin fyrir að fara í ef að ég verð svona verkjuð. En ég verð bara að bíta á jaxlinn og reyna að harka þetta af mér, það þýðir víst lítið annað.

Ég ætla að taka mér tveggja daga pásu á LDNinu þar sem ég er að fara í þetta ferðalag en svo byrja ég bara að hörku aftur þegar ég kem til baka. Ég er búin að ath hvort að það sé ekki í lagi þ.e. að sleppa úr dögum og ég fékk jákvætt svar við því.
Svo fór í járngjöf nr. 2 í dag og gekk hún bara mjög vel nema að á heilsugæslunni vilja þeir gefa járnið í drippi en blómeinafræðingurinn gaf þetta bara í sprautu og tók það mun skemmri tíma heldur en í dag. En ef að þeim finst betra að gefa þetta svona ætla ég ekkert að vera að tuða í þeim svo lengi sem ég fer að hressast þá skiptir þetta ekki miklu máli.

No comments:

Post a Comment