Tuesday, May 29, 2012

LDN gjöfin gengur alveg ljómandi vel. Nú er ég búin að fá þetta lyf í tæpar 2 vikur svo að ég verð dáldið þreytt af þessu og einnig út af járnleysinu. En ég fer á morgun í járn gjöf nr. 2 á morgun og þá er það önnur gjöfin af 6 se ég á að fá. En ég er að reyna að vera dugleg að gera eitthvað hér heima og gengur það svona lala. Ég fór með manninum mínum og sonum í gær upp í Motomos en það er mottokross braut sem að við hugum um og þar gróðursettum við heil 9 tré, 7 aspir stórar, 1 genitré og tvo tré sem ég veit ekki hvað heita. Við erum að reyna að gera brautina gróður mikla svo að það sé ekki eins mikið ryk. En ég var alveg búin á því þegar við komum heim svo að ég varð að leggja mig. Við tókum helgina nokkuð rólega fyrir utan heljarinnar afmælisveislu fyrir dóttirina sem heppnaðist alveg frábærlega. Það komu heil 19 stk af krökkum og einungis 5 fullorðnir. Kökurnar kláruðust og það var svo til engin tiltekt eftir þetta sem betur fer. En þetta var mjög gman en ég  varð mjög þreytt eftir þetta.


No comments:

Post a Comment