Já hvað á ég að segja, LDN er ekki alveg farið að virka eins og ég hefði viljað en ég bara verð að vera þolinmóð eins og með allt annað. Ég fer í jángjöf nr. 3 á fimmtudaginn og vonandi verð ég þá aðeins hressari en ég er í dag. V/ fóturinn fer að stríða mér annað slagið svo að það er kannski gott að hafa hækjurnar til staðar og hjólastólinn en ég ætla mér samt ekki að nota hann eða alla vega ekki eins lengi og ég mögurlega get komist hjá því.
Þessi dagur er ekki búin að vera neitt voðalega góður hvað varðar heilsuna. Ég er búin að hafa hausverk frá því að ég vaknaði og ekkert virkar á hann af því sem að ég er búin að vera að taka þ.e. ekki TREO, íbúfen eða parataps ;( Ohhh jæja hann hlýtur að fara á einhvertíman.
Ég fór norður á Akureyri og Ólafsfjörð um helgina og ég sleppti því að taka inn LDN á meðan. Ég fann mikinn mun á mér bara við því að sleppa 2 dögum svo að þetta hlýtur að vera byrjað að gera eitthvað fyrir mig. En það gengur samt vel að taka þetta og bragðið venst óvenju vel.
En það er gaman að segja frá því að krakkarnir mínir eru komin í sumarfrí en það voru skólaslit í gær og útskrift hjá elsta syni mínum. Ég var svo stolt af þeim og þau fengu öll góðar einkunir og þá sérstaklega hún dóttir mín sem að fékk mjög gott í öllu og yngri sonur minn fékk bara einkunnir frá 6.5 - 9,5.. Já þetta eru klár börn sem að ég á. Elsti sonur minn fékk sérstök verðlaun fyrri góðan árangur í íþróttum en hann fékk 10 í íþróttum :)
Ég er stolt en mjög þreytt móðir sem vildi svo óska þess að ég hefði góða heilsu til að njóta þess að eiga börn og geta verið með þeim í leik og starfi. Ég elska börnin mín meira en allt en ég er bara endalaust þeytt og slöpp og verð bara verri og verri með hverjum deginum. En ég ætla mér að ná heilsunni á ný og njóta þess að vera til en ég verð bara að vera þolinmóð eins og alltaf!!!
No comments:
Post a Comment