Alveg vissi ég þetta, kastið stóð stutt yfir. Ég er reyndar enn í kasti en ég er orðin svo mikið betri en ég var. Ég nota reyndar enn stólinn en ég get líka staðið upp og labbað smá. Stutt er það reyndar í einu en smá samt. Ég gat alla vega sett í þvottavélina, hengt upp og bakað hafrakex. Ég er komin í stólinn núna enda varð ég rosalega þreytt í fótunum eftir allan skjálftann en ég verð bara að taka því rólega og passa mig að fara ekki of geyst af stað. Maður er nú alltaf að læra eitthvað á hverjum degi. Ef að maður lærði aldrei neitt nýtt reglulega þá held ég að lífið væri bara ekkert skemmtilegt!!!
Ég er búin að vera að taka inn LDN-ið með hjálp frá manninum mínum á meðan ég er í kastinu og hefur það bara gengið mjög vel. Kannski er það því að þakka að ég sé svona fljót að ná mér ég veit það ekki en kannski.
Nú er sko vetur konungur að fara að mæta á svæðið með allri sinni dýrð. Það er búið að frysta hérna, snjóa í Esjuna og búið að vera mikið rok og rigningu. Það má segja það að við erum nánast búin að fá allar sortir af veðurfari nema kannski haklél. En svona er Ísland í dag og búið að vera í mörg hundruð ár. Ekki beint ms sjúklinga vænt land sem við búum í enn svona er það nú bara.
En flensan kemur líka heim til mín og er búin að leggjast á alla á heimilinu með kvefi, upp og niður gang, hita og slappleika. Það er allt of mikið að muna að læra líka að það eru til flensu sprautur sem hægt er að fá. Ég fer aldrei til að fá þessa sprautu. Svona getur maður verið mikill kjáni, ég er jú mannleg þrátt fyrir ms ;)
En ég ætla kannski að vera eitthvað smá í tölvunni núna og svo er það bara afslöppun á milli þess að ég ætla mér að reyna mitt besta að taka aðeins til og kannski þrífa smá líka ( ef að ég mögulega get ) ;)
Hafi þið það sem allra best í dag þrátt fyrir leiðinda veður og brosið bara nógu mikið því þá fáið þið alltaf bros á móti frá einhverjum :D
No comments:
Post a Comment