Tuesday, September 25, 2012

Já það má með sanni segja að ms er svo óútreiknanlegur að það hálfa væri hellingur. Ég er búin að vera í kasti í 10 daga með deginum í dag nema að ég var bundin hjólastól í 8 daga, hækjurnar og stólinn í 1 dag og núna í morgun vaknaði ég haltrandi en fór svo í kalt bað og viti menn, núna get ég nánast gengið án hjálpatækja. Aldrei hefði mig getað grunað það hvað kalda vatnið getur verið gott fyrir okkur líka. Ég byrjaði auðvitað á því að fara í heitt bað en lét svo renna alveg ískalt vatn í baðið á meðan ég var að tæma úr því. Ég er sem sagt loksins að verða búin í þessu leiðinda kasti :D

Núna get ég farið að gera eitthvað á heimilinu eins og t.d. þrífa og taka til það mesta. Ekki það að ég ætli eitthvað að fara að ganga frá mér í dag, ég mun taka því rólega líka. En þegar maður er búin að vera að horfa á draslið safnast saman í hrúgu í þetta langan tíma þá getur maður ekki gert það lengur. Auðvitað fer maður að gera eitthvað í því um leið og maður getur. Jú ég á mann og börn sem geta alveg gert hlutina líka en það er bara þannig með mig að ég vil gera þetta sjálf og þess vegna er ég ekki komin með heimilishjálp. Hún fær ekki að koma fyrr en ég verð gömul!!!

Í gær var mér bent á eitt sem ég ætla að prófa. það er að hætta að borða eða neita glúteins. Ég veit að það er í hveiti og brauði og svona og öllum unnum vörum en ég verð bara að læra á þetta og vita í hverju það er. Það skaðar ekki að prófa þetta alla vega. Ég var nefnilega að heyra um eina konu sem prófaði þetta en hún er með ms líka og eftir að hún prófaði þetta í 4 eða 6 mánuði er hún hætt að fá köst. Hún er reyndar á einhverjum ms lyfjum líka svo að ég veit ekki hvort að það sé út af þeim sem hún fær ekki köst eða út af glútein leysinu. Blettunum á heilanum á henni eru nánast hofnir líka á meðan þeim fjölgar ört hjá mér. En já ég er að spá í að prófa þetta!!!

EN JÁ ÞETTA ER SKO GÓÐUR DAGUR HJÁ MÉR Í DAG OG VERÐUR ÞAÐ VONANDI ÁFRAM :) Svo ég er kveð með bros á vör og munið að brosa nógu mikil líka svo að þið fáið alveg örugglega bros á móti ;)

No comments:

Post a Comment