Wednesday, September 12, 2012

Góðan og blessaðan daginn kæru lesendur. Já ég er í þokkalega góðu skapi eftir alveg frábært reunion síðustu helgi. Það tók mig tvö ár rúm að undirbúa það en ég var ein til að byrja með en síðan bættust við tveir alveg yndislegir skólaféagar sem að hjálpuðu mér við loka höndina. Ég hefði aldrei náð að gera þetta að veruleika án þeirra Þórunnar og Ómars svo enn og aftur takk fyrir aðstoðina, þið eruð snillingar :)

En já þetta heppnaðist alveg rosalega vel í alla staði. Maturinn var bara alveg ágætur en ég borðaði nú reyndar ekki mikið og svo fór enginn þurr heim ;) Ef að það væri ekki fyrir LDN þá hefði ég farið snemma heim. En þar sem að ég var svo úr hvíld þegar ég mætti þá var ég að frá kl. 4 um daginn til kl. 6 um morguninn eftir ;) Ég breyttist í algjört partý ljón ;) En þetta gerir maður bara 1 sinni á svona 2-10 ára fresti þ.e. ef að ég geri þetta aftur. Ég viðurkenni það að þetta tók sinn toll af mér enda er ég búin að vera hálf drusluleg alla vikuna. Reyndar er ég orðin voða kvefuð eins og börnin mín og eiginmaður. Dóttir mín fékk gubbupestina á meðan hún var í pössun hjá ömmu sinni og afa og svo er unglingurinn drullu slappur líka og er  því heima í dag svo að hann komist á busaballið á morgun :)

En í annað, nú er ég búin að vera að taka inn LDN í 3-4 mánuði og ég finn smá mun á mér. Ég er bara enn voða þreytt og ringluð og mjög verkjuð. Ég tek enn Gabapentin og Íbúfn en það er líka allt og sumt af lyfjum sem ég tek. Jú ég tek magalyf líka og svo bara lýsi og D vítamín en það eru ekki lyf. Ég meina ég á parkódín forte en það virkar bara ekkert á mig lengur af því að ég er á LDN. Ég er að reyna að harka þetta af mér, ég er ekki eins slæm og ég var fyrir LDN þannig að ég á svo sem ekket að vera að kvarta enda geri ég nú ekki mikið af því heldur. Þetta er heldur ekki beint verkjalyf. Ég get vakað lengur en ég gerði og ég get líka gert aðeins meira hér heima heldur en ég gerði svo að þetta er að gera eitthvað fyrir mig.
Ég fer í segulómun aftur 25 október vegna þess að ég er svo ringluð alltaf svona eins og ég svífi fyrir ofan líkamann á mér og horfi niður. Stundum fer allt að snúast í hringi og ég verð mjög utan við mig. Þetta er ekki alveg að gera sig svo að John vill senda mig í segulómun til að ath hvort að það séu nokkuð komnir nýjir blettir á heilann eða mænuna. Vonandi ekki samt :/

1 comment:

  1. LDN virkar á mig sem verkjalyf...en ertu komin í hámarksskammtinn þ.e.a.s 4,5ml? Ef ekki þá væri ráð að prófa að stækka hann til að sjá hvort þú fáir ekki meira út úr því. Ég er núna fyrst almennilega að finna áhrifin eftir 12 mánuði. Er að taka tæplega 4ml og varð einmitt fyrst verkjalaus við að fara úr 3 uppí tæpa 4. Og að sjálfsögðu jókst orkan líka við það. Bara smá pæling ;) Gangi þér annars vel og frábært að þú gast tekið duglega á því í djamminu, það er svo gaman :D

    ReplyDelete