Þetta er búið að vera aðeins lengra kast heldur en ég hefði viljað. Ég er enn í kasti en er vonandi öll að koma til. Ég hef alla vega ekkert sest í stólinn í dag enn sem komið er og vonandi er þetta bara allt á uppleið núna. Það tekur mikið á að vera svona lengi í kasti og í þetta skipti var þetta dáldið slæmt. Skjálftinn er það sem að mér finnst verstur af þessu, hann tekur alla vega mest á og getur maður fengið slæmar harðsperrur eftir hann. Svo er líka pínu vont að fá taugaverkina í fótinn sem ég er verulega erfitt með að hreifa, úfff það er sárt. En ég er á uppleið vonandi núna svo að ég held þetta út. Þetta var þó ekki verra en þetta svo að ekki kvarta ég núna heldur frekar en aðra daga. Shit happends eins og ég segi oft ;)
Það er aldrei að vita nema að LDN-ið sem eitthvað að hjálpa mér út úr þessu kasti þ.e. hvað varðar jákvæðnina alla vega. Ég trúi því líka að jákvæðnin sé besta meðalið með alla sjúkdóma. Líkaminn læknar sem best sjálfur trúi ég og ef að við pössum vel upp á hann og eins ef að hugurinn er góður vinnum við allt eða alla vega lengjum við líf okkar þó svo að það sé ekki nema eitthvað smá þá er það alla vega eitthvað!!! Þjóska hjálpar líka eitthvað og er ég nokkuð viss um að þrjóskan í mér sé að hjálpa mér núna. Mér finnst ekki gaman að vera í hjólastólnum mínum þó flottur sé ;) og ég þoli ekki vesen sem mér finnst þetta vera svo að þess vegna held ég að ég sé að ná mér núna 7,9,13. mér finnst ekkert auðvelt að labba með hækjurnar en ég skal og ætla mér að notast við þær núna þangað til ég hef náð mér að fullu í stað stólsins. Ég trúi því líka að ef að maður notast of mikið við þessi blessuðu hjálpartæki er maður bara þeim mun lengur að jafna sig. Vitlaust hugsað kannski en þessu trúi ég!!!
Ég er voða forvitin um hvort að komnir séu nýjir blettir á heilann eða mænuna eftir þetta kast. Auðvitað vona ég að svo sé ekki en það kæmi mér ekki á óvart. Ég er líka búin að vera mjög skrítin í höfðinu í langan tíma, ringluð og með brjálaðn höfuðverk með. En eins og ég hef sagt svo oft áður þá tengi ég höfuðverjaköstin mín við ms kast. Ég veit ekki um neinn annan sem tengja höfuðvek við ms kast en eins og ég hef líka sagt áður þá eru engir tveir ms sjúklingar eins svo að þó svo að ég sé svona þýðir það ekki að einhver annar sé svona líka. Aðrir eru kannski með önnur einkenni sem er fyrirboði kasts hjá þeim og er það bara mjög líklegt.
Ég var einu sinni spurð í viðtali hvað ms væri. Það er lítið hægt að svara því nema bara að tala um sína eigin reynslu svo að ég sagði bara frá minni reynslu. Ég get ekki talað um hvernig öðrum líður af því að ég veit það ekki.
Þegar ég er í kasti eins slæmu og þessu er ómetanlegt að fá aðstoð með hvað sem er og þá aðalega með krakkana. Stelpan var hjá ömmu og afa frá föstudegi til laugardags og yngri guttinn var hjá vini sínum frá föstudegi til sunnudags. Takk fyrri aðstoðina þið sem eigið það skilið :)
Ég vona að allir eigi góðan og ánægjulegan dag í allann dag og að allir brosi nógu mikið því þá brosir alla vega einn til ykkar á móti ;D
No comments:
Post a Comment