Helgin voru enn og aftur tekin með ró. Ég náði að hvíla mig svona þokkalega vel en við tókum samt eina litla skvísu yfir nótt á aðfaranótt sunnudags svo að það voru smá læti í vinkonunum en samt ekki of mikil og skemmtu þær sér bara vel. Ég vaknaði frekar snemma í gærmorgun og fór þá bara að ganga frá og svona og svo fór ég að baka með stelpunum. Ég leifði þeim að gera næstum allt nema að mæla hráefnið og voru þær bara mjög duglegar og smakkaðist kakan bara mjög vel:)
Ég skil ekki alveg þessa miklu þreytu sem er að hrjá mig þessa dagana. Ég á mjög erfitt með að halda mér vakandi yfir sjónvarpinu á kvöldin og er ég svona oftast sofnuð upp úr kl. 10 á kvöldin. Ég held að það sé líka eitthvað í loftinu sem er að valda þessu þar sem að ég veit um þó nokkra sem eru að upplifa þetta líka. Höfuðverkurinn er enn að stríða mér og er ég orðin nett þreytt á honum. Ef að ég fyndi ekki svona mikið til þá mætti hann alveg vera en hann er svo vondur og á ég oftast erfitt með að hafa augun opin þegar ég er með þennan höfuðverk. Ég veit að mígreni lýsir sér svona en ég held að þetta sé út af brjósklosinu í hálsinum og vöðvabólgunni frekar. Ég er enginn læknir en ég er farin að þekkja minn líkama nokkuð vel og mín veikindi. Ég er pínu svona vesen ;)
Mér finnst alls ekki gaman að þurfa að treysta svona mikið á aðra eins og ég geri og vildi svo óska þess að svo væri ekki. En svona getur lífið verið óréttlátt við suma. Ég hef það bara gott miða við marga sem ég þekki svo að ég má ekki kvarta. Mánudagarnir eru frekar bissy hjá mér en ég er að fara að leggja í hann með krakkana í söngskólann og svo heim að elda en í kvöld verður það kjötsúpa alla Hulda ;) Ég ætla að hafa hveitibollur með en ég ólst upp við það að fá svoleiðuis með kjötsúpunni og eru krakkarnir voða hrifnir af þeim ;) Langamma mín gerði þetta alltaf og gerði hún lang bestu kjötsúpu sem ég hef á æfinni smakkað. Ég er ekki enn búin að geta gert eins góða súpu en ég er nálagt því ef ég segi sjálf frá :)
En eigið þið frábærann dag með stórt bros á vör í allan dag :D
Monday, October 29, 2012
Friday, October 26, 2012
Ég er enn á lífi eftir segulómunina en í gær var það mjög tæpt. Ég skil ekki þessa hræðslu við þetta tæki en ég fæ alveg hrikalega innilokunarkennd þegar ég fer í það og ég verð sérstaklega hrædd þegar tækið fer að hristast allt. Ég er gunga ég veit en ég er hrædd við þetta og aðrir við eitthvað annað. Ég stóð mig samt bara mjög vel ef ég segi sjálf frá og ég er bara mjög stolt af mér :)
Ég átti pantaðan tíma hjá lækninum strax á eftir en honum var svo frestað þar til í næstu viku svo að ég verð bara að bíða eftir niðurstöðum þangað til þá. Ég er verð ég að játa píu stressuð yfir niðurstöðum en ég verð að reyna að gera það ekki þar sem að allt stress getur valdið kasti. Og svo verð ég að vera jákvæð því að það er ekki nóg að segja örum að vera það og vera það svo ekki sjálf, það er pínu kaldhæðni í því.
En alla vega þá ætla ég mér að reyna að vera alveg súper dugleg í dag og gera allt rosalega hreint og fínt hér heima og aldrei að vita nema að ég baki eitthbvað gott líka ;) Krakkarnir eru stutt í skólanum í dag en þau eru búin kl. 11:30 svo að dóttirin kemur bara heim því að miðju strákurinn fer til vinar síns og verður hjá honum í allan dag svo að hún fær bara að hjálpa mér að baka. Henni þykir það sko ekki leiðinlegt. Svo finnst henni voða gott að fá að borða restina af deginu sem að ég nota ekki ;)
En ég ætla nú að fara að byrja á því að gera fínt hjá mér svo að ég kveð í bili með brosið allan hringin og vona að þið munið gera það líka. Eigiði góðan dag í allan dag :D

Tuesday, October 23, 2012
Það kemur svo margt upp í höfðinu á mér sem að ég verð að hleypa út. Nú er það hvað ég dáist að fólki sem er ekki alveg eins og við hin eða ef að það má kalla það þannig. Ég var að horfa á einn af mínum uppáhalds þáttum áðan sem er "Ellen " ( Ég elska þann þátt ) og þar kom ungur maður sem fæddist bara með einn fót. Hann er ekkert smá duglegur!!! Þrátt fyrir " fötlun " ef að fólk vill kalla þetta það þá er hann einhver júdó meistari í Bandaríkjunum. Hann vann alveg heilbrigðan mann þó svo að hann sé bara með einn fót. Þetta kennir alla vega mér það að þrátt fyrir smá fötlun þá getur maður gert nánast allt sem maður ætlar sér að gera og ef að viljin er nógu mikill. Ég er reyndar búin að ganga með það í hausnum frá upphafi og ég lýt td. ekki á mig sem fattlaða konu þegar ég er í kasti. Líkamin minn tekur sér bara smá frí af og til en ég er aldrei eitthvað föttluð. Ég er jú með einhvern stypil á mér sem á stendur ms en ég mun aldrei líta á mig sem fattlaða eða lamaðan einstakling. Ég er bara ég sem er manneskja eins og þú. Ég þekki eins konu sem er bundin hjólastól og hefur verið það frá fæðingu en hún getur allt sem hún vill. Hún er alveg heil í höfðinu og á meðan höfuðið er í lagi þá er hún ekki fötluð í mínum augum alla vega.
En alla vega þá gengur LDN gjöfin bara vel og engar aukaverkanir þó svo að ég sé búin að stækka skammtin upp í 2,5 ml. Ég er reyndar frekar mikið slæm í bakinu þessa dagana en ég lifi það alveg af.
Mér finnst mjög gott að blogga. það hjálpar mér að vera jákvæð og ég á það til að brosa mikið þegar ég er að blogga. Mér finnst það bara mjög gaman og það er að hjálpa mér mikið. Ég hef engan að tala við á dagin nema jú krakkana þegar þau koma heim en þangað til eru það bara blessuð dýrin mín en þau svara mér engu svo að ég tala bara við ykkur kæru lesendur. Nú eru krakkarnir í vetrarfríi en byrja aftur í skólanum á morgun. Helgin voru nokkuð róleg bara. Við hjónin fórum til vina okkar í mat á laugardags kvöldið, stelpan fór til ömmu sinnar og afa og strákarnir vildu bara vera heima að spila tölvuleik við vinina. Við komum snemma heim enda þreytt og vöknuðum þá bara snemma á sunnudags morgun og fórum að gera eitthvað þá aðalega bara að slappa af ;)
Það voru kostningar um helgina um stjórnarskránna. Ég ætlaði að fara en mér fannst ég bara ekki hafa nóg mikið vit á þessu öllu saman svo að ég sleppti því bara. Ekki vildi ég fara að kjósa enhverja vitleysu. Mér finnst bara orðið frekar erfitt að horfa á fréttirnar í dag. Það er endalaust verið að ræða um stjórnvöld þetta og stjórnvöld hitt og Jóhanna þetta og Jóhanna hitt og svo um vitlaysinginn hann Steingrím J. Ég er komin með upp í kok á þessu fólki og þessu bulli í fréttunum. Það er eiginlega aldrei rætt um eitthvað annað. Svo finnst mér bara heimurinn allur vera komin í einhvern drullu pitt því að allir eru orðnir eitthvað svo grimmir og vondir. Kannski ekki allir en voða margir. Svo lentum við í því einhvertíman í síðustu viku eða um helgina að Ýtan okkar sem er uppi í Motomos var skemmd. Skemmdarvargarnir reyndu að koma henni í gang með því að stinga skrúfjárni í svissinn og þar brotnaði skrúfjánið svo að svissinn er ónýtur og þegar það virkaði ekki þá rifu þeir mælaborðið í sundur og hafa greinilega ætlað að starta ýtunni með vírunum sem tókst greinilega ekki helur. Þetta eru bara einhverjir algjörir bjánar sem voru þarna á ferð.
En ýtan verður löguð og þá verður hgt að fara að vinna í brauttinni aftur með bros á vör ;)
En ég er að spá í að hætta að blogga í dag alla vega og fara kannski eitthvað smá á facebook og svo að gera eitthvað hérna heima. Ég ætla alla vega að lofa ykkur einu og það er að ég ætla mér að brosa mikið í dag því að ef að ég brosi þá fæ ég bros á móti frá öðrum ;)
Hafið það gott í dag kæru lesendur því að ég ætla mér að gera það líka ;)

Thursday, October 18, 2012
Brrrr hvað það er kalt. Já veturinn er svo sannarlega kominn með kulda og í mínu hverfi roki líka. Ég er samt dugleg að hengja út þvottinn á nýju snúruna mína sem að ég er svo ánægð með en það versta við þennan kulda er að þegar ég er að hengja út má segja að puttarnir detta nánast af út af því það er svo agalega kalt. Ég þarf að dúða mig í úlpu og hanskana bara til að hengja út. En það er samt þess virði finnst mér því að mér finnst koma svo góð og fersk lykt af þvottinum þegar ég þurka hann úti. Ég er voða spes með þetta og mér þykir ekki leiðinlegt að þvo, í raun finnst mér það bara voða gaman. Skrítin ég veit en mér er alveg sama hvað öðrum finnst um mig með þetta ;)
Ég hækkaði LDN skammtin enn meira í gær eða úr 2,3 í 2,8 ml. Ég hugsa að ég fari bara í 3 ml í kvöld. Mér líður bara svo vel núna. Ég er reyndar búin að vera voða ringluð sl. 4 daga en ég held að það tengist sko ekki LDN-inu heldur ms-inu. Ég held bara að það séu komnir nýjir blettir sem eru að valda þessu og fæ ég að vita það í næstu viku því að ég á tíma hjá lækninum mínum strax eftir segulómunina sem ég er að fara í þann 25 Október. Auðvitað vona ég að myndirnar sýni ekki neitt nýtt en það kemur mér samt ekki á óvart ef að fleiri blettir hafi myndast. En á meðan ég hef heilsu til að standa í lappirnar og að ég get lifað hamingjusömu lífið með manninum og börnum og öllum þeim sem þykir vænt um mig og mér um alla þá er ég sátt. Ég veit að ég er ekkert að deyja og þrátt fyrir lömun eða veikindi þá hef ég svo mikla hjálp frá öllum að ég hef ekki miklar áhyggjur af þessu.
En núna er ég að fara að gera það skemmtilega sem er að hengja út og setja í aðra vél með bros út að eyrum á meðan. Ég kveð í dag með brosi og vonandi getið þið brosað líka ;) Eigið þið alveg ljómandi góðan dag í allan dag :)

Tuesday, October 16, 2012
Ég finn ótrúlega mikin mun á mér eftir að ég hækkaði skammtinn af LDN-inu. Ég er meira vakandi og hressari. Ég svaf vel í nótt en mjög illa síðustu nótt. Eina sem er að hrjá mig núna eru nýrun en það lagast. ég verð bara að vera dugleg að drekka vatn svo að ég geti hreinsað þau. En já mér líður að öllu öðru leiti mjög vel. Ég er búin að ná í taugalyfið og byrjuð að taka það svo að það er kannski að hjálpa mér með þessa góðu líðan.
Það er komið frost hér í henni Reykjavíkinni okkar og það þarf virkilega að skafa bílinn ef að ég ætla mér að fara að nota hann í dag. En ég ætla mér bara að vera heima að taka til og þrífa og slappa af inn á milli. Ég virðist alltaf vera að taka til og þrífa en ég get gert svo lítið í einu svo að þetta tekur allt góðan tíma. Ég hef hvort eðer ekkert annað að gera nema kannski að baka og þvo þvott. Maður tímir ekkert að hreifa bílinn nema bara til að gera það nauðsinlegasta vegna þess að bensínið er orðið svo rosalega dýrt í dag og ekki hækka launin. Já Ísland er fallið á botnin held ég. Ástandið getur varla orðið mikið verra!!!
Ég náðu svo sætri mynd af kettinum og dóttur mynni um dagin í ég vil endilega deila henni með ykkur.
Þau eru svo miklir vinir þessar elskur og kúra oft saman. Svona sofnaði dóttir mín bara nokkrum mín. eftir að myndin var tekin :)
En vonandi eiga allir góðan dag í allan dag og munið eftir brosinu svo að þið fáið bros til baka :)

Monday, October 15, 2012
Það er allt gott af mér að frétta ennþá og líðan bara nokkupð góð núna. Ég er reyndar með taugaverkina í hámarki en ég er búin að taugalyfið mitt og ekki komist í apótek en er að fara í dag að ná í það. Ég er búin að hækka skammtin af LDN út 1,5 ml upp í 2,4 ml.ca. og gengur það bara mjög vel og líður mér bara nokkuð vel eftir að ég hækkaði skammtinn.
Ég reyndar gekk frá bakinu í gær en ég fór út ásamt mömmu og manninum mínum að taka upp restina af kartöflunum. Ég má bara orðið ekki gera neitt sem reynir á bakið án þess að gjalda margfalt fyrir það í 1-2 vikur á eftir. En það fylgir víst því að vera með ónýtan hrygg.
Ég verð bara að vera dugleg að hlýfa bakinu og beyja mig rétt og svona á meðan ég er sem verst og helst bara alltaf.
Ég fékk svo fallegt bréf frá litlu skottunni minni um helgina að ég verð bara að deila því með ykkur.

- Rosa flot nafn og rosa flot skrifað hjá þér elsku mamma mín :)
- Mamma mín er alveg rosa góð mamma og ég elska hana rosa mikið :)
Mér þótti þetta vera krúttlegast í heimi að fá frá henni af því að þetta kom svo beint frá hjartanu enda er hún líka bara 7 ára. Stafsettningin er ótrúlega góð miða við það en ég skrifaði þetta orðrétt frá henni. Hún skrifaði sambærileg bréf til pabba síns, bræðra og svo ömmu og afa líka en mitt fannst mér flottast ;)
Ég er að spá í að verða mér út um ramma undir bréfin og ramma þau inn og hengja upp á vegg.
Laugardagurinn og sunnudagur voru notaðir mest í afslöppun en ég og Helena fórum reyndar í heimsókn til vinkonu minnar í gær og færði hún okkur eintómar gjafir þessi engill. Við eða öllu heldur ég drakk með henni kaffi og borðum við vínber og súkkulaði með og spjölluðum um heima og geima. Helena teiknaði fallega mynd handa mér og pabba sínum og var það bara mjög gott að komast aðeins út fyrir hverfið okkar þó svo að það hafi ekki verið í nema kannski svona 2 klst. Þegar heim var komið var farið í það að þrífa eitthvað smá og svo komu mamma pg pabbi og þá fórum við út að taka upp kartöflurnar.
En þó svo að ég sé enn pínu þreytt verð ég að fara að drífa mig að sækja krakkana og svo í bæinn.
Vonandi geta allir átt góðan dag í allan dag og munið að brosa nógu mikið svo að þið fáið nú fallegt bros frá öðrum á móti.
Tuesday, October 9, 2012
Mér líður bara nokkuð vel núna. Ég er búin að ná að slappa vel af undanfarið svo að núna er kominn tími á að fara að gera eitthvað heima hjá mér til að byrja með og svo kannski utan heimilis líka ;)
Ég ætla að hækka skammtin hjá mér núna af LDN-inu og ath hvernig það fer í mig. Ég er búin að vera að taka þetta það lengi að ég held að virknin sé farin að dvína svo að ég held að það sé komin tími á hækkun. Það verður gaman að sjá hvort að ég finni einhvern mun á mér eftir hækkunina.
Ég er oft búin að vera að spá í því að fara að hreifa mig meira. Ég er pínu stressuð vegna þess að ég dofna svo í fótunum þegar ég labba mikið en ég verð að fara að gera eitthvað. Ég fitna bara og fitna þó svo að ég reyni að borða bara holt. Ég er viss um að hreifing sé málið. Það er bara verst hvað ég er orðin vatnshrædd svo að ég er ekki alveg að þora að fara í sund til að synda þ.e. alla vega ekki ein. Ég lenti í því fyrir 6 árum síðan að vera að synda í laug úti á Spáni þegar ég lendi í " druknun " Eftir það höndla ég það ekki að synda nema undir eftirliti. Mér líður eins og smákrakka en svona er það bara. Við fullorna fólkið getum líka verið vatnshrædd. Ef að ég næ ekki niður þá panika ég og þá er voðin vís. Mér er sagt að ms-ið sé valdurin af þessu en hvað veit ég!!!
Þetta verður stutt hjá mér í dag vegna þess að ég er að þrífa húsið mitt og vil þá minst vera í tölvunni. Eigi þið góðan dag og munið eftir brosinu svo að þið fáið bros á móti :D

Wednesday, October 3, 2012
Líðan mín er enn góð og hef ég ekki fengið neitt bakslag frá því að kastið hætti. Ég finn að það er greinilega komin skemd á heila eftir þetta kast þar sem að v/ hliðin er ekki eins góð og áður en þetta er ekki sjáanlegt utan á mér svo að ég kvarta ekki. Hækjur og stóll eru samt alltaf nálagt mér til öryggis en ég ætla að bíða lengi eftir að þurfa á þeim að halda aftur. Ég ætla mér að labba inn á elliheimilið eftir 50 ár eða svo svo að ég er alveg róleg. Ég geri ráð fyrrir því að börnin mín vilji að við förum á svoleiðis stofnun þ.e.a.s. ;)
Helgin eru búin að vera alveg yndisleg hjá okkur fjölskyldunni. Við erum búin að nota alla helgina í afslöppun og videó gláp ;) Yngri börnin fóru til vina sinna og gistu hjá þeim svo að við hjónin vorum bara ein með unglingnum.
Það er eitt mikilvægt sem mér langar að tala um og það er að eins og ég hef svo oft skrifað áður er að lífið okkar er bara skóli. Þetta er stæðsti skóli í heimi, skóli lífsins. Ég er búin að vera að horfa á " The docktors " þar sá ég viðtal við fólk sem á strák sem er með alvarlegan sjúkdóm. mamman kennir sér um það og hún grét sáran. Ég get skilið það enda greinilega mjög erfitt fag að ganga í gegnum þegar kemur að börnum okkar. Þetta rifjaði bara upp fyrir mér hvað það var erfitt að sjá dóttur mína inni á BSH þegar hún var 4-15 mánaða. Hún var að kljást við ónæmisgalla sem er þannig að hún var með bælt ónæmiskerfi og var því ofur viðkvæm fyrir öllum pestum. Ég kenndi mér um það í smá tíma bara af því að ég er með ms og þá fannst mér eins og ég heði bælt það. Þetta bara kemur upp í hugan á held ég öllum foreldrum þegar börnin veikjast illa. Síðan 2007 greinist unglingurinn minn með tourett og er það taugasjúkdómur. Þá kom aftur upp í huga minn að það væri örugglega mér að kenna og sagði einn læknir já og svo tveir aðrir nei. Ég kýs að trúa þessum tveimur. Ég má ekki vera að kenna mér um eitthvað sem ég get ekki lagað sjálf svo að ég geri það ekki. Skóli lífsins er oft mjög erfiður en getur líka verið jafn skemmtilegur á móti. Ég þakka bara fyrir hvern einasta dag sem við stöndum öll heil og allir eru kátir og glaðir. Ég er það kannski ekki alltaf og mjög of neikvæð og í vondu skapi en mér finnst það ekki gaman enda reyni ég að gera mitt besta í að vera í góðu skapi.
Ég heyrði í báðum ömmum mínum í gær og sögðu þær báðar að ég væri svo dugleg og jákvæð. Ég get ekkert annað. Ég á 3 yndisleg börn sem ég elska meira en lífið sjálft, ég á góðan mann sem ég dái og elska líka meira en lífið sjálft. Svo á ég frábæra foreldra sem eru svo dugleg að hjálpa mér og yndislegar ömmur. Ég á líka 1 bróður og 2 systur sem ég elska líka en hitti því miður allt of sjaldan en ég elska þau líka mjög mikið. Ég er heppin að eiga þetta fólk að. Svo er öll tengda fjölskylan líka. Þau eru líka alveg yndisleg og hafa verið okkur mjög góð.
Ekki allir hafa svona góða að og er ég þakklát fyrir allt þetta fólk í kringum mig og segi ég bara takk allir fyrir að vera í lífi mínu.
En vonandi eiga allir góðan dag og halda áfram að brosa svo að bros komi á móti :)

Subscribe to:
Posts (Atom)