Ég finn ótrúlega mikin mun á mér eftir að ég hækkaði skammtinn af LDN-inu. Ég er meira vakandi og hressari. Ég svaf vel í nótt en mjög illa síðustu nótt. Eina sem er að hrjá mig núna eru nýrun en það lagast. ég verð bara að vera dugleg að drekka vatn svo að ég geti hreinsað þau. En já mér líður að öllu öðru leiti mjög vel. Ég er búin að ná í taugalyfið og byrjuð að taka það svo að það er kannski að hjálpa mér með þessa góðu líðan.
Það er komið frost hér í henni Reykjavíkinni okkar og það þarf virkilega að skafa bílinn ef að ég ætla mér að fara að nota hann í dag. En ég ætla mér bara að vera heima að taka til og þrífa og slappa af inn á milli. Ég virðist alltaf vera að taka til og þrífa en ég get gert svo lítið í einu svo að þetta tekur allt góðan tíma. Ég hef hvort eðer ekkert annað að gera nema kannski að baka og þvo þvott. Maður tímir ekkert að hreifa bílinn nema bara til að gera það nauðsinlegasta vegna þess að bensínið er orðið svo rosalega dýrt í dag og ekki hækka launin. Já Ísland er fallið á botnin held ég. Ástandið getur varla orðið mikið verra!!!
Ég náðu svo sætri mynd af kettinum og dóttur mynni um dagin í ég vil endilega deila henni með ykkur.
Þau eru svo miklir vinir þessar elskur og kúra oft saman. Svona sofnaði dóttir mín bara nokkrum mín. eftir að myndin var tekin :)
En vonandi eiga allir góðan dag í allan dag og munið eftir brosinu svo að þið fáið bros til baka :)
No comments:
Post a Comment