Það kemur svo margt upp í höfðinu á mér sem að ég verð að hleypa út. Nú er það hvað ég dáist að fólki sem er ekki alveg eins og við hin eða ef að það má kalla það þannig. Ég var að horfa á einn af mínum uppáhalds þáttum áðan sem er "Ellen " ( Ég elska þann þátt ) og þar kom ungur maður sem fæddist bara með einn fót. Hann er ekkert smá duglegur!!! Þrátt fyrir " fötlun " ef að fólk vill kalla þetta það þá er hann einhver júdó meistari í Bandaríkjunum. Hann vann alveg heilbrigðan mann þó svo að hann sé bara með einn fót. Þetta kennir alla vega mér það að þrátt fyrir smá fötlun þá getur maður gert nánast allt sem maður ætlar sér að gera og ef að viljin er nógu mikill. Ég er reyndar búin að ganga með það í hausnum frá upphafi og ég lýt td. ekki á mig sem fattlaða konu þegar ég er í kasti. Líkamin minn tekur sér bara smá frí af og til en ég er aldrei eitthvað föttluð. Ég er jú með einhvern stypil á mér sem á stendur ms en ég mun aldrei líta á mig sem fattlaða eða lamaðan einstakling. Ég er bara ég sem er manneskja eins og þú. Ég þekki eins konu sem er bundin hjólastól og hefur verið það frá fæðingu en hún getur allt sem hún vill. Hún er alveg heil í höfðinu og á meðan höfuðið er í lagi þá er hún ekki fötluð í mínum augum alla vega.
En alla vega þá gengur LDN gjöfin bara vel og engar aukaverkanir þó svo að ég sé búin að stækka skammtin upp í 2,5 ml. Ég er reyndar frekar mikið slæm í bakinu þessa dagana en ég lifi það alveg af.
Mér finnst mjög gott að blogga. það hjálpar mér að vera jákvæð og ég á það til að brosa mikið þegar ég er að blogga. Mér finnst það bara mjög gaman og það er að hjálpa mér mikið. Ég hef engan að tala við á dagin nema jú krakkana þegar þau koma heim en þangað til eru það bara blessuð dýrin mín en þau svara mér engu svo að ég tala bara við ykkur kæru lesendur. Nú eru krakkarnir í vetrarfríi en byrja aftur í skólanum á morgun. Helgin voru nokkuð róleg bara. Við hjónin fórum til vina okkar í mat á laugardags kvöldið, stelpan fór til ömmu sinnar og afa og strákarnir vildu bara vera heima að spila tölvuleik við vinina. Við komum snemma heim enda þreytt og vöknuðum þá bara snemma á sunnudags morgun og fórum að gera eitthvað þá aðalega bara að slappa af ;)
Það voru kostningar um helgina um stjórnarskránna. Ég ætlaði að fara en mér fannst ég bara ekki hafa nóg mikið vit á þessu öllu saman svo að ég sleppti því bara. Ekki vildi ég fara að kjósa enhverja vitleysu. Mér finnst bara orðið frekar erfitt að horfa á fréttirnar í dag. Það er endalaust verið að ræða um stjórnvöld þetta og stjórnvöld hitt og Jóhanna þetta og Jóhanna hitt og svo um vitlaysinginn hann Steingrím J. Ég er komin með upp í kok á þessu fólki og þessu bulli í fréttunum. Það er eiginlega aldrei rætt um eitthvað annað. Svo finnst mér bara heimurinn allur vera komin í einhvern drullu pitt því að allir eru orðnir eitthvað svo grimmir og vondir. Kannski ekki allir en voða margir. Svo lentum við í því einhvertíman í síðustu viku eða um helgina að Ýtan okkar sem er uppi í Motomos var skemmd. Skemmdarvargarnir reyndu að koma henni í gang með því að stinga skrúfjárni í svissinn og þar brotnaði skrúfjánið svo að svissinn er ónýtur og þegar það virkaði ekki þá rifu þeir mælaborðið í sundur og hafa greinilega ætlað að starta ýtunni með vírunum sem tókst greinilega ekki helur. Þetta eru bara einhverjir algjörir bjánar sem voru þarna á ferð.
En ýtan verður löguð og þá verður hgt að fara að vinna í brauttinni aftur með bros á vör ;)
En ég er að spá í að hætta að blogga í dag alla vega og fara kannski eitthvað smá á facebook og svo að gera eitthvað hérna heima. Ég ætla alla vega að lofa ykkur einu og það er að ég ætla mér að brosa mikið í dag því að ef að ég brosi þá fæ ég bros á móti frá öðrum ;)
Hafið það gott í dag kæru lesendur því að ég ætla mér að gera það líka ;)
No comments:
Post a Comment