Helgin voru enn og aftur tekin með ró. Ég náði að hvíla mig svona þokkalega vel en við tókum samt eina litla skvísu yfir nótt á aðfaranótt sunnudags svo að það voru smá læti í vinkonunum en samt ekki of mikil og skemmtu þær sér bara vel. Ég vaknaði frekar snemma í gærmorgun og fór þá bara að ganga frá og svona og svo fór ég að baka með stelpunum. Ég leifði þeim að gera næstum allt nema að mæla hráefnið og voru þær bara mjög duglegar og smakkaðist kakan bara mjög vel:)
Ég skil ekki alveg þessa miklu þreytu sem er að hrjá mig þessa dagana. Ég á mjög erfitt með að halda mér vakandi yfir sjónvarpinu á kvöldin og er ég svona oftast sofnuð upp úr kl. 10 á kvöldin. Ég held að það sé líka eitthvað í loftinu sem er að valda þessu þar sem að ég veit um þó nokkra sem eru að upplifa þetta líka. Höfuðverkurinn er enn að stríða mér og er ég orðin nett þreytt á honum. Ef að ég fyndi ekki svona mikið til þá mætti hann alveg vera en hann er svo vondur og á ég oftast erfitt með að hafa augun opin þegar ég er með þennan höfuðverk. Ég veit að mígreni lýsir sér svona en ég held að þetta sé út af brjósklosinu í hálsinum og vöðvabólgunni frekar. Ég er enginn læknir en ég er farin að þekkja minn líkama nokkuð vel og mín veikindi. Ég er pínu svona vesen ;)
Mér finnst alls ekki gaman að þurfa að treysta svona mikið á aðra eins og ég geri og vildi svo óska þess að svo væri ekki. En svona getur lífið verið óréttlátt við suma. Ég hef það bara gott miða við marga sem ég þekki svo að ég má ekki kvarta. Mánudagarnir eru frekar bissy hjá mér en ég er að fara að leggja í hann með krakkana í söngskólann og svo heim að elda en í kvöld verður það kjötsúpa alla Hulda ;) Ég ætla að hafa hveitibollur með en ég ólst upp við það að fá svoleiðuis með kjötsúpunni og eru krakkarnir voða hrifnir af þeim ;) Langamma mín gerði þetta alltaf og gerði hún lang bestu kjötsúpu sem ég hef á æfinni smakkað. Ég er ekki enn búin að geta gert eins góða súpu en ég er nálagt því ef ég segi sjálf frá :)
En eigið þið frábærann dag með stórt bros á vör í allan dag :D
No comments:
Post a Comment