Brrrr hvað það er kalt. Já veturinn er svo sannarlega kominn með kulda og í mínu hverfi roki líka. Ég er samt dugleg að hengja út þvottinn á nýju snúruna mína sem að ég er svo ánægð með en það versta við þennan kulda er að þegar ég er að hengja út má segja að puttarnir detta nánast af út af því það er svo agalega kalt. Ég þarf að dúða mig í úlpu og hanskana bara til að hengja út. En það er samt þess virði finnst mér því að mér finnst koma svo góð og fersk lykt af þvottinum þegar ég þurka hann úti. Ég er voða spes með þetta og mér þykir ekki leiðinlegt að þvo, í raun finnst mér það bara voða gaman. Skrítin ég veit en mér er alveg sama hvað öðrum finnst um mig með þetta ;)
Ég hækkaði LDN skammtin enn meira í gær eða úr 2,3 í 2,8 ml. Ég hugsa að ég fari bara í 3 ml í kvöld. Mér líður bara svo vel núna. Ég er reyndar búin að vera voða ringluð sl. 4 daga en ég held að það tengist sko ekki LDN-inu heldur ms-inu. Ég held bara að það séu komnir nýjir blettir sem eru að valda þessu og fæ ég að vita það í næstu viku því að ég á tíma hjá lækninum mínum strax eftir segulómunina sem ég er að fara í þann 25 Október. Auðvitað vona ég að myndirnar sýni ekki neitt nýtt en það kemur mér samt ekki á óvart ef að fleiri blettir hafi myndast. En á meðan ég hef heilsu til að standa í lappirnar og að ég get lifað hamingjusömu lífið með manninum og börnum og öllum þeim sem þykir vænt um mig og mér um alla þá er ég sátt. Ég veit að ég er ekkert að deyja og þrátt fyrir lömun eða veikindi þá hef ég svo mikla hjálp frá öllum að ég hef ekki miklar áhyggjur af þessu.
En núna er ég að fara að gera það skemmtilega sem er að hengja út og setja í aðra vél með bros út að eyrum á meðan. Ég kveð í dag með brosi og vonandi getið þið brosað líka ;) Eigið þið alveg ljómandi góðan dag í allan dag :)
No comments:
Post a Comment