Ég reyndar gekk frá bakinu í gær en ég fór út ásamt mömmu og manninum mínum að taka upp restina af kartöflunum. Ég má bara orðið ekki gera neitt sem reynir á bakið án þess að gjalda margfalt fyrir það í 1-2 vikur á eftir. En það fylgir víst því að vera með ónýtan hrygg.
Ég verð bara að vera dugleg að hlýfa bakinu og beyja mig rétt og svona á meðan ég er sem verst og helst bara alltaf.
Ég fékk svo fallegt bréf frá litlu skottunni minni um helgina að ég verð bara að deila því með ykkur.
- Rosa flot nafn og rosa flot skrifað hjá þér elsku mamma mín :)
- Mamma mín er alveg rosa góð mamma og ég elska hana rosa mikið :)
Mér þótti þetta vera krúttlegast í heimi að fá frá henni af því að þetta kom svo beint frá hjartanu enda er hún líka bara 7 ára. Stafsettningin er ótrúlega góð miða við það en ég skrifaði þetta orðrétt frá henni. Hún skrifaði sambærileg bréf til pabba síns, bræðra og svo ömmu og afa líka en mitt fannst mér flottast ;)
Ég er að spá í að verða mér út um ramma undir bréfin og ramma þau inn og hengja upp á vegg.
Laugardagurinn og sunnudagur voru notaðir mest í afslöppun en ég og Helena fórum reyndar í heimsókn til vinkonu minnar í gær og færði hún okkur eintómar gjafir þessi engill. Við eða öllu heldur ég drakk með henni kaffi og borðum við vínber og súkkulaði með og spjölluðum um heima og geima. Helena teiknaði fallega mynd handa mér og pabba sínum og var það bara mjög gott að komast aðeins út fyrir hverfið okkar þó svo að það hafi ekki verið í nema kannski svona 2 klst. Þegar heim var komið var farið í það að þrífa eitthvað smá og svo komu mamma pg pabbi og þá fórum við út að taka upp kartöflurnar.
En þó svo að ég sé enn pínu þreytt verð ég að fara að drífa mig að sækja krakkana og svo í bæinn.
Vonandi geta allir átt góðan dag í allan dag og munið að brosa nógu mikið svo að þið fáið nú fallegt bros frá öðrum á móti.
No comments:
Post a Comment