Tuesday, October 9, 2012

Mér líður bara nokkuð vel núna. Ég er búin að ná að slappa vel af undanfarið svo að núna er kominn tími á að fara að gera eitthvað heima hjá mér til að byrja með og svo kannski utan heimilis líka ;)

Ég ætla að hækka skammtin hjá mér núna af LDN-inu og ath hvernig það fer í mig. Ég er búin að vera að taka þetta það lengi að ég held að virknin sé farin að dvína svo að ég held að það sé komin tími á hækkun. Það verður gaman að sjá hvort að ég finni einhvern mun á mér eftir hækkunina.

Ég er oft búin að vera að spá í því að fara að hreifa mig meira. Ég er pínu stressuð vegna þess að ég dofna svo í fótunum þegar ég labba mikið en ég verð að fara að gera eitthvað. Ég fitna bara og fitna þó svo að ég reyni að borða bara holt. Ég er viss um að hreifing sé málið. Það er bara verst hvað ég er orðin vatnshrædd svo að ég er ekki alveg að þora að fara í sund til að synda þ.e. alla vega ekki ein. Ég lenti í því fyrir 6 árum síðan að vera að synda í laug úti á Spáni þegar ég lendi í " druknun " Eftir það höndla ég það ekki að synda nema undir eftirliti. Mér líður eins og smákrakka en svona er það bara. Við fullorna fólkið getum líka verið vatnshrædd. Ef að ég næ ekki niður þá panika ég og þá er voðin vís. Mér er sagt að ms-ið sé valdurin af þessu en hvað veit ég!!!

Þetta verður stutt hjá mér í dag vegna þess að ég er að þrífa húsið mitt og vil þá minst vera í tölvunni. Eigi þið góðan dag og munið eftir brosinu svo að þið fáið bros á móti :D

No comments:

Post a Comment