Ég er enn á lífi eftir segulómunina en í gær var það mjög tæpt. Ég skil ekki þessa hræðslu við þetta tæki en ég fæ alveg hrikalega innilokunarkennd þegar ég fer í það og ég verð sérstaklega hrædd þegar tækið fer að hristast allt. Ég er gunga ég veit en ég er hrædd við þetta og aðrir við eitthvað annað. Ég stóð mig samt bara mjög vel ef ég segi sjálf frá og ég er bara mjög stolt af mér :)
Ég átti pantaðan tíma hjá lækninum strax á eftir en honum var svo frestað þar til í næstu viku svo að ég verð bara að bíða eftir niðurstöðum þangað til þá. Ég er verð ég að játa píu stressuð yfir niðurstöðum en ég verð að reyna að gera það ekki þar sem að allt stress getur valdið kasti. Og svo verð ég að vera jákvæð því að það er ekki nóg að segja örum að vera það og vera það svo ekki sjálf, það er pínu kaldhæðni í því.
En alla vega þá ætla ég mér að reyna að vera alveg súper dugleg í dag og gera allt rosalega hreint og fínt hér heima og aldrei að vita nema að ég baki eitthbvað gott líka ;) Krakkarnir eru stutt í skólanum í dag en þau eru búin kl. 11:30 svo að dóttirin kemur bara heim því að miðju strákurinn fer til vinar síns og verður hjá honum í allan dag svo að hún fær bara að hjálpa mér að baka. Henni þykir það sko ekki leiðinlegt. Svo finnst henni voða gott að fá að borða restina af deginu sem að ég nota ekki ;)
En ég ætla nú að fara að byrja á því að gera fínt hjá mér svo að ég kveð í bili með brosið allan hringin og vona að þið munið gera það líka. Eigiði góðan dag í allan dag :D
No comments:
Post a Comment