Ég átti mjög góðan dag í gær og var jákvæðnin í algöru hámarki hjá mér allan daginn. Mér leið mjög vel líkamlega framan af en svo fór ég er rjúka upp í hita með ógleði og magapínu en það er liðið hjá sem betur fer.
Ég fékk næst síðustu járnsprautuna í dag og aftur þurfti að sprauta mig í fótinn ;( Það er alveg fáránlega vont að fá sprautu þar, en svona er þetta bara þegar æðarnar á manni grafa sig eins djúpt inn í húðina og þær geta og fela sig þar. En alla vega þá tók þetta ekki eins langan tíma og síðast sem betur fer. Ég fer svo í síðustu gjöfina á fimmtudaginn í næstu viku og þá kemst ég í sterameðferðina. Ætli ég fari þá ekki bara í þar næstu viku.
Sterameðferðin mun alveg örugglega ganga vel og svo er þetta ekki nema bara 3 dagar sem ég þarf að liggja inni svo að ég reyni bara að slaka vel á á meðan.
Elsta barnið mitt fékk að vita það í dag að hann komst inn í skólan sem að hann valdi svo að það ríkir mikil gleði á heimilinu í dag. Hann fer í Borgarholtsskóla á framhaldskólabraut og ég hef fulla trú á að honum mun vegna vel í skólanum :)
En nú ætla ég að halda áfram að reyna að vera sem jákvæðust og fara að gera eitthvað af viti á meðan heilsan leifir mér ;)
No comments:
Post a Comment