Tuesday, June 26, 2012

Það er alveg ótrúlegt hvað það er endalaust hægt að brjóta á fólki og að brjótendur svitni ekki einu sinni við það að vera svona samviskulausir ;( Nú er búið að vera að tala um það í fréttum af hverju ms sjúklingar fái ekki lyfin sem að þeir þurfa svo nauðsinlega á að halda. 
Ég vil benda á 76. gr. stjórnarskrárinnar,http://www.althingi.is/lagas/140a/1944033.html
. Það að peningar séu ekki til er ekki afsökun. Það eru til peningar, þeir fara bara í annað, eins og ferðir ráðamanna til Brussel, EES umsókn og annað jafn (ó)nauðsynlegt.

1944 nr. 33 17. júní/ Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands
www.althingi.is

Það var verið að hækka laun forsætisráðherra í stað þess að láta hækkunina frekar í lyf fyrir okkur. það kosta ríkið svo mikið minni peninga að hafa okkur heil. Við þurfum þá ekki að leggjast svona oft inn á spítala, fá t.d. stera sem kosta nú sitt eða önnur lyf sem virka svo bara alls ekki neitt.  Nú fer að líða að því að ég fer að leggjast inn á spítala í sterameðferð. Hvað ætli það kosti ríkið??? Ég mun liggja inni í 3 daga; ég mun þurfa að borða eitthvað, ég þarf rúm til að sofa í með rúfötum sem þarf að þvo eftir mig. Eitthvað mun þetta kosta. Ef að ég væri á lyfjum sem að geta hjálpað mér þyfti ég ekki að leggjast inn. Ég verð að afla mér nánari upplýsinga um kostaðin áður en ég fer að bulla einhverja vitlaysu en ég er svona nokkuð viss um að ef að allir ms sjúklingar þurfa að leggjast inn svona 1-2 á ári þá safnast þetta allt saman og kostar ríkið örugglega svona helmingi meira heldur en að láta okkur á lyfin sem að við þurfum. Ég hef ekki verið rannsökuð til að ath hvort að ég þoli tysabri og ekki heldur fyrir þessu nýja lyfi sem er veið að berjast svo mikið fyrir svo að hvernig geta læknar neitað manni um að fá að alla vega prófa að fara á t.d. tysabri. Vangaveltur dagsins í dag hjá mér alla vega.

En ég held áfram að taka inn LDN 2 mg. og gengur það bara mjög vel.
Ég er búin að ætla mér í fjöruferð með dóttur minni síðan ég veit ekki hvenar en hef aldrei orkuna til þess að fara en í dag ákvað ég að fara og fannst henni bara gaman að fá að vaða í sjónum. Ég reyndar stoppaði ekkert voðalega lengi en ég er bara ánægð með að hafa drifið mig. Þetta var ágætis göngutúr fyrir mig og hreifing sem veitir sko ekki af. En mér er farið að verkja mjög mikið í hendurnar svo að ég gat ekki stoppað eins lengi og ég hefði viljað en kannski verð ég lengur næst og vonandi verð ég þá verkjalaus.
Á fimmtudagin er síðasta járngjöfin hjá mér og ég get ekki beðið með að vera búin á þessu. Það er ekki gott að vera stugin 2-5 sinnum bara til að finna góða æð í hverri viku. En þetta er að hjálpa mér alveg helling svo að þetta er bara gott.

No comments:

Post a Comment