Í gær jók ég skammtinn af LDN-inu úr 1,5 mg í 2 mg. Í dag er ég búin að vera með eins og sprengju í rassinum ég er búin að vera eitthvað svo ör. Ég er búin að þrífa stórann hluta af húsinu og ég er að verða þreytt fyrst núna og kl. er orðin meira en 5. Vanalega er ég alveg dauð upp úr kl 3 á daginn. Ég er nokkuð viss um að LDN-ið sé eitthvað farið að virka vel á mig. Ég meira að segja bakaði snúða til að taka með á morgun en við erum að fara á keppni hjá elsta syni mínum en hann er að keppa í mótókross.
Svo er hátíð hér heima þ.e. í hverfinu alla helgina en það eru svo kallaðir Kjalarnes dagar. Ætli maður taki ekki eitthvað smá þátt í því líka, veit samt ekki hversu mikið. Ekki við ég ganga alveg frá mér aftur strax eftir kast.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig stækkun á skammta stærð mun virka á mig. Ég veit að þetta gerist ekki eftir bara eitt skipti. Ég svaf út í morgun en ég vaknaði ekki fyrr en kl. 9:30 í morgun og kannski er það skýringin á því af hverju ég er búin að vera svona ör í dag.
En nú eru yngri börnin farin til ömmu sinnar og afa og ætla þau að vera þar alla vega í nótt. Það er svo gott að fara til ömmu og afa til að fá smá frí frá mér hahaha. Og auðvitað frá tiltekt líka og svona.
En þetta verður bara stutt blogg í dag svo að ég kveð í bili alla vega.
No comments:
Post a Comment