Monday, June 11, 2012

Takk þið sem nennið að lesa hugsanir nínar og takk fyrir góðar viðtökur. Ég er að blogga um mína reynslu á lyfinu LDN og um mína heilsu eins og t.d ms og vefjagit.

Ég svaf alveg ljómandi vel í alla nótt enda tók ég inn Íbúfen, Gabapenin, LDN og svefnlyf fyrir nóttina. Ég hef ekki sofið nógu vel út af endalausum verkjum í öllum líkamnum og ég vakna að meðaltali 3-5 sinnum á hverri nóttu og er búin að vera þanng í alla vega sl 2 ár ef ekki lengur.  Þð er virkilega slítandi að fá ekki góðan svefn og er ég viss um að heilsunni sé að hraka svona hratt núna út af svefnleysi. Nú er ég enginn læknir en ég tel mig hafa ágætis reynslu á að vera sjúklingur svo að ég veit að gott mataræði, hreifing og svefn séu besta meðalið. Ég er komin á það stig sjúkdómsins að ég á bara mjög erfitt með að hreifa mig svo að ég geri sem minst af því því miður. Hér á árum áður var ég mikil útivistarfrík, ég elskaði að fara í útilegur, fara á torfærukeppnir og sérstaklega hef ég haft gaman af motokrossi en sonur minn er að keppa í því. Ég er svo stolt af honum og montin með hann. Hann er nefnilega mjög efnilegur. En ég á orðið erfitt með að fara að horfa á hann þar sem að heilsan leifir mér ekki að líða vel. Ég þrjóskars sko samt til að mæta en ég finn þá bara margfallt fyrir því eftir keppni, en mér finnst það gaman og þess vegna mæti ég á allar keppnir sem ég kemst á. Í fyrra misti ég af 2 keppnum og ég sá alveg rosalega eftir því en ég var erlendis að heimsækja bestu vinkonu mína en hún er flutt til Noregs.


No comments:

Post a Comment