Góður dagur í dag :)
Já mér líður bara mjög vel í dag. Ég labba pínu skringilega en ég var dugleg að slaka vel á í gær og notaði hækjurnar líka svo að í dag finnst mér ég ekki þurfa þær. Ég þarf kannski eina hækju ef að ég er að fara eitthvað út að labba en ekki hér inni.
Það er komið að því að ég þurfi að blanda annan skamt af LDN svo að ég fer í það í dag svo að ég hafi eitthvað til að taka í kvöld fyrir svefnin :) Ég svaf mjög vel í alla nótt og ætlaði mér að sofa út þar sem að dóttirin svaf hjá vinkonu sinni í nótt en nei ég var vöknuð kl. 8:30 sem var svo bara hið besta mál. Ég fór bara í það að þrífa húsið og svo vakti ég strákana kl 10 og lét þá hjálpa mér sem að þeir gerðu mjög vel. Ég hef alltaf haft trú á að þeir gætu þetta og ég sá það svo sannarlega í dag :) Ég á svo yndisleg börn :)
Ég ætla að fara út í garð á eftir að láta strákana stækka kartöflugarðinn. Ég mun leika verkstjóra og ætla mér að gera það vel ;) Síðan mun ég fá strákana til að hreinsa hundaskítinn líka. Ég er í raun að ganga frá mér en það er bara svo gott að vera búin að þessu öllu sem allra fyrst af því að þá líður manni rosalega vel. Ég er í rauninni að njóta þess að líða vel. Ég er ekki með mikla verki núna og ég er ekki með mikinn dofa heldur bara þennan venjulega sem er alltaf v/ megin. Að öllu öðru leiti líður mér bara mjög vel og ætla mér að njóta þess í botn :)
No comments:
Post a Comment