Tuesday, June 19, 2012

Jæja er ekki komin tími á smá blogg frá mér :)
Helgin eru búin að vera alveg yndisleg í alla staði nema bara smávægilegt ms kast. Fæturnir fór í smá prakkaraskap sem varð til þess að ég fór að nota hækjurnar en það er nánast gengið til baka svo að þetta var ekkert til að vera að væla yfir. Við fjölskyldan notuðum alla helgina í motokross en á laugardaginn fórum við upp á Skaga til að leifa mínum elsta að æfa sig og yngri krakkarnir fengu sko líka að hjóla. Það var mikið hjólað og margir hringir teknir enda veðrið með eindæmum gott. Það er búið að gera svo flotta aðstöðu fyrir áhorfendur þarna með bekkjum og borðum og svo er búið að gera mjög flott leiksvæði fyrir yngri börnin sem kom sér alveg rosalega vel. Við vorum  með vina fólki okkar og gerðum við okkur glaðan dag á Skaganum og grilluðum með þeim þegar við komum heim. Á sunnudeginum var ferðinni haldið í Motomos og var hjólað álíka mikið þar og grilluðum við aftur með sama vinafólki. Yngri krakkarnir fóru aftur á móti í 17 júní gleði á Mosfellsbæ og skemmtu þau sér bara vel þar :)

Ég er búin að minka lyfjatökuna mína um meira en helming núna og er ég farin að vera nánast verkjalaus. Ég fæ alveg mína bakverki og hásverki en ég finn mikið minna til í fingrum, höndunum öllum og fótum. Bjúgurinn er líka búin að minka alveg helling og ég er farin að léttast aftur. Hvort að þetta sé LDN-inu að þakka eða járninu veit ég ekki enn en það kemur í ljós fljótlega grunar mig :)

Ég hitti lækninn minn um dagin og vill hann endilega leggja mig inn á spítala uppi á Skaga í sterameðferð um leið og ég er búin á minni síðustu járngjöf. Ég verð þá  bara að bíta í það súra epli og sætta mig við það þó svo að ég hata spítala. Mér líður bara ekki vel að vera lokuð inni og geta ekki farið þangað sem að mig langar. En svona er þetta bara.
Mér gengur mjög vel að taka inn LDN-ið og tek það á hverju kvöldi mjög samviskusamlega alltaf rétt fyrir svefnin. Ég er farin að sofa mjög vel núna og vakna eiginlega ekki neitt á nóttunni lengur nema bara ef ég drekk eitthvað óeðlilega mikið vatn yfir daginn þá vakna ég kannski einu sinni mesta lagi tvisvar yfir nótttina bara til að pissa en ég geri það eiginlega í svefni hehehe ;)
Já og ekki má gleyma einu mikilvægu. Eftir langa baráttu um að fá að prófa að fara á Lyrica þá vill John endilega reyna að koma mér á það. Honum finnst algjört hneiksli að ég sé ekki löngu komin á það þar sem að þetta á að koma í veg fyrir fleiri köst og koma í veg fyrir að maður versni. Nú er ég búin að versna alveg helling og enn ekki búin að fá það sem er alveg fáránlegt. Ég var bara búin að gefast upp á að reyna að fá það en nú sé ég smá von aftur.

No comments:

Post a Comment